UNNUR 2.0
Bitra Internetmamman snýr aftur

Maður verður að gera fleira en gott þykir

2008-05-15 21:35  Blog

Í dag þegar ég kom heim voru örlög mín ekki lengur flúin og ég neyddist til að taka til. Ég ryksugaði. Ég skúraði. Ég gekk frá drasli. Ég braut saman föt. Ég djúpryksugaði kattahárin úr sófanum. Ég ryksugaði alla sófapúða í sama tilgangi. Ég fór út með öll teppi og mottur og hristi. Ég þreif kattakassann. Ég þreif klósettið. Ég gekk um húsið með tusku og þreif ryk og bletti.

Svo verðlaunaði ég mig með góðum kvöldmat og litlu rauðvínsglasi. Á meðan ég þreif og bölvaði því hvað mér finnst stundum ógeðslega leiðinlegt að þrífa hafði ég nefnilega bakað eggaldinsneiðar í ofni þar til þær voru mjúkar og sætar. Ofan á þær hrúgaði ég salsa úr sólþurrkuðum tómötum, steinselju, smá pestói og púrrulauk.

Ég hef annars hafið nýjan og spennandi feril sem útburður hjá Morgunblaðinu. Í morgun vaknaði ég því klukkan fimm mínútur í sex og dró blaðakerru um hverfið. Korter í sjö var ég komin heim, fór í sturtu, lagaði latte, ristaði brauð, klóraði Blixu á bak við eyrað og las blöðin. Svo valdi ég mér samstæð föt til að fara í í vinnuna í staðinn fyrir að láta mér nægja að veiða flíkur upp af gólfinu og nota svitalykt/ekki svitalykt kríteríuna. Ég var svo mætt í vinnuna rétt rúmlega átta. Og nei, ég er ekki að ljúga.


Gönguferð um kirkjugarðinn

2008-05-15 10:44  Blog

Hádeginu í gær eyddi ég í Hólavallagarði. Þar leiddi vinkona mín Sólveig Ólafsdóttir rúmlega 60 manna hóp um garðinn og skýrði frá sérkennum garðsins og sögu. Við heyrðum um mann hvers seinni kona gróf eins langt í burtu frá fyrri konu hans og hægt var, um vökumenn og vökukonur, skoðuðum hvar líkhúsið stóð, fræddumst um fjöldagrafir og grafhýsi og heyrðum af því á hversu margvíslegan hátt og af hversu margvíslegu fólki garðurinn er notaður. Heimir Janusarson, garðyrkjufræðingur per excellence og aðstoðargarðyrkjustjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma greip svo öðru hvoru hljóðnemann af Sólveigu og sagði okkur frá athuglisverðum plöntum og trjám. Þetta var afskaplega gaman og ekki var veðrið af lakara taginu. Mér fannst beinlínis erfitt að fara aftur inn í hús eftir svona indælt hádegi.

Þið sjáið hvað þetta var indælt...

Hólavallagarðsganga

Hólavallagarðsganga

Hólavallagarðsganga

Hólavallagarðsganga


Lúxuspían borðar aldrei ein

2008-05-14 23:26  Blog

Í gær kýldi ég vömbina á Santa Maria í afskaplega góðum félagsskap. Þaðan héldum við á Boston og svo á Ölstofuna. Það var afskaplega gaman og margt skemmtilegt rætt. Það var hinsvegar ekki alveg jafn gaman þegar ég stóð við dyrnar að húsinu mínu um hálfeittleytið heldur tipsí og áttaði mig á því að ég var lyklalaus. Í morgun færði ég Bryndísi nágrannakonu minni lítið blóm í þakklætisskyni fyrir að hafa með bros á vör svarað í símann um miðja nótt og látið mig hafa varalyklana mína í staðinn fyrir að hella úr hlandkopp út um gluggann á mig.

Í kvöld borðaði ég með mömmu, pabba, systur minni og Alfreði kærasta systur minnar á Sjávarbarnum. Það er eiginlega skömm frá því að segja að ég er búin að vera á leiðinni á þennan stað, sem er svo gott í næsta húsi við mig, í rúmlega ár. Því miður reynist rangt með farið á vefsíðunni þeirra og hlaðborðið girnilega ekki í boði á kvöldin virka daga. Við pöntuðum okkur því af matseðlinum og ákváðum að vera verulega grand á því og njóta sjávarréttarfantasíu. Tekið var fram á matseðlinum að hún væri fyrir fjóra og fleiri sem við skyldum sem svo að það þyrftu a.m.k. fjórir að panta réttinn til þess hann væri framreiddur.

Þegar maturinn kom reyndist hann virkilega góður en ég verð að segja eins og er að mér fannst verðið og hráefnið ekki alveg vera að ríma saman. Mér fannst fyrst við pöntuðum dýrasta réttinn á matseðlinum, að við ættum að fá skelfisk og humar en ekki bara ljúffenga fiskiþrennu með sallötum. En maður skemmir ekki fjölskyldustund með því að nöldra þannig að ég gerði það ekki. Þegar kom að því að borga komumst við hinsvegar að því að það að sjávarréttafantasían væri fyrir fjóra og fleiri þýddi einfaldlega að hún væri nægur matur fyrir fjóra eða fleiri. Í stað þess að borða fyrir 4×3800 krónur höfðum við því borðað fjögur fyrir 3800 krónur. Það fannst mér almennilegur misskilningur! Svo sló ungi þjónninn móður minni í ofanálág reyndar svo gasalega gullhamra fyrir fegurð og persónutöfra að það eru allar líkur til þess að hún svífi á of bleiku skýji til að stríða systur minni ekki í nokkra daga! Sem út af fyrir sig ætti að vera nokkurra þúsundkalla virði.

Á morgun mun hefjast nýtt líf meinlæta og yfirbótar.


Smekkleysi fyrrum tíma

2008-05-13 14:41  Blog

Fjarverandi systrunum til heiðurs horfði ég í gær á mynd um framakonuna Elsu. Síðast þegar ég sá hana var hún yfirmaður í SS sveitunum. Í þetta sinnið var hún kvennabúrsstjóri í ónefndu arabaríki. Myndin var mun betri en ég hafði búist við, hún hafði alveg þokkalegan söguþráð og endirinn var skemmtilega andstyggilegur. Það er hinsvegar ljóst að kvikmyndagerðarmönnum leyfðist einu sinni ýmislegt sem þrátt fyrir alla klámvæðingu myndi aldrei leyfast í dag.

Í kvöld mun ég fara enn einu sinni á Santa Maria. Tilefnið er kvöldverður og samdrykkja fráfarandi stjórnar Reykjavíkur Akademíunnar ses. Ég var búin að gleyma því, þangað til bara núna í morgun að ég væri að fara. Í gærkvöldi sat ég hinsvegar heima og lét mig dreyma um Santa María nachos. Ég held að þeir sáldri heróíni yfir matinn, svo ávanabindandi er hann!


Rétt áður en Lúx brenndi á sér trýnið

2008-05-12 23:45  Blog

Köttur þefar af kertaljósi

Hvítasunnuhelgi

2008-05-12 20:03  Blog

Áðan bræddi ég piparbrjóstsykur saman við vatn og sauð blönduna þangað til hún var orðin að leðju. Leðjunni smurði ég svo á hamborgara ásamt heimagerðri wasabidressingu, spínatlaufum og rauðlauk. Innblásturinn var grein í einhverju blaðanna í vikunni þar sem sagt var frá piparbrjóstsykurborgara á snobbbúllunni Brons. Þetta var alveg þokkalega nammigott og ég er eiginlega soldið spennt að prófa þessa sósu með t.d nauta- eða hrossalundum.

Annars hefur þetta verið ágætis Hvítasunnuhelgi. Föstudagskvöldinu eyddi ég í leikhúsi þar sem við Katla sáum Engispretturnar eftir serbnesku skáldkonuna Biljana Srbljanovic. Það var stórkostlega vel heppnuð leikhúsferð þar sem allt; sagan, leikur, sviðsmynd og tónlist svínvirkaði og small saman eins og púsluspil! Í dag las ég svo viðtal við leikstjórann sem dýpkaði upplifanina enn fremur. Svo kíktum við á Boston þar sem við rákumst á fólk yfir tveim rauðvínsglösum áður en við tókum þá skynsamlegu ákvörðun að fara bara heim til að geta staðið undir þeim verkefnum sem okkar biðu á laugardeginum.

Ég eyddi laugardeginum á málþingi um neftóbaksfræði í Landsbókasafni. Ég hafði á síðustu stundu verið beðin um að halda þar lítið erindi sem ég og gerði. Ég held það hafi lukkast ágætlega að vekja áhuga viðstaddra á Miðstöð munnlegrar sögu og á möguleikum munnlegra heimilda. Um kvöldið var Sólveig svo sæt að bjóða mér í mat. Hún framreiddi gæsalifrarkæfu með fíkjum, lambabóg og meðlæti ásamt klikkuðu rouille og súkkulaðirommmús í eftirmat. Saman fórum við Sólveig og Heimir svo í partí til demónsins Arnars. Þaðan á Boston og fleiri bari. Daginn eftir vaknaði ég þunn klukkan níu og lagði af stað upp í Borgarnes í lambalæri til mömmu. Mamma hló að mér og sagði að mér væri nær. Amma aftur á móti hafði þó nokkra samúð með mér.

Í gærkvöldi horfði ég á The Price of Milk sem er skrýtnasta rómantíska gamanmynd sem ég hef séð. En þó mjög sæt. Svo horfði ég á Beyond the Valley of the Dolls.. Mér finnst eiginlega nauðsynlegt að horfa reglulega á þá mynd og ég hef skrifað um það hvað soundtrakkið úr henni er fáránlega flott en afhverju maður þarf að aðgæta hvaða útgáfu þess maður kaupir. Kalli sem var líka þunnur horfði með mér. Hann kom með kók og súkkulaði og við gófluðum í okkur risastórri skál af poppkorni.

Í Finnlandi pantaði ég mér undarlega samsetta pitsu á þeim forsendum að enginn veitingastaður myndi bjóða upp á slíkt stöff ef það væri ekki gott. Í dag beitti ég sömu röksemdafærslu á pólskan rúgbrauðsgosdrykk sem var til sölu í pólsku kjörbúðinni í Kolaportinu. Það var afar slæm ákvörðun.


Tepokablogg

2008-05-09 11:00  Blog

Í fyrradag hitti ég Helgu Lilju á kaffi París. Hún gaf mér æðislega afmælisgjöf: Betty Page glasamottur. Við slúðruðum og hún ásakaði mig um að lifa í sjónvarpsþætti. Og mér fannst það fyndið því eins og sjónvarpsþættirnir er bloggið jú alltaf ritstýrt.

Í gær fór ég á opnun á harla skemmtilegri myndlistarsýniningu: LIST OG FRÆÐI í Hoffmannsgalleríi Reykjavíkur Akademíunnar. Hún byggir á samvinnu listamanna og fræðimanna, einskonar stefnumóti, og þar er margt skemmtilegt að sjá. Svo fór ég í sund og synti eiginlega ekki neitt, maraði bara í barnalauginni og pottinum þar til þreytan hafði liðið aðeins úr mér. Um kvöldið fór ég í heimsókn til Vincents, ræddi næsta tattú og horfði á vídeó. Meðal annars þetta og svo þetta. Amerísk vinkona hans slóst í hópinn og kom færandi hendi með bjór.

Um daginn sá ég Ástin er diskó, lífið er pönk. Þið getið lesið hér hvað mér fannst. Í kvöld ætla ég að sjá meira leikhús.


Éttu mig

2008-05-08 12:39  Blog

How many cannibals could your body feed?
Created by OnePlusYou

Ég hata lélega hundaeigendur. Ég er búin að vera að finna vonda lykt í allan morgun og var farin að gruna skrifstofufélaga minn um að vera með vindverki og búin að athuga hvort það væri eitthvað að mygla í ruslatunnunni. Rétt áðan uppgötvaði ég að ég hef stigið ofan í hundaskít á leiðinni í vinnuna. Djöfuls viðbjóður.


Mjög falleg nótt

2008-05-08 11:02  Blog

Ég fór í göngutúr um miðnætti í gær til að ná úr mér kyrrsetuþreytupirringi. Ég sá ekki eftir því. Veðrið var svo óskaplega stillt og kyrrt og nóttin svo hljóðlát. Loftið var rakt eftir daginn og silfruð dögg lá yfir grasi og nýbrumuðu laufi. Vesturbærinn var mettaður angan af birki og mold. Kirsuberjatréð á Sólvallagötunni er þakið bleikum blómum og hverfiskötturinn Hnota elti mig niður alla Túngötuna.

Ég svaf mjög vel í nótt.


Tepoki

2008-05-07 11:13  Blog

Það rættist úr deginum í gær. Matur með Kötlu á Santa María varð að bjór á Boston þar sem Hafdís og fleiri bættust í hópinn. Úr varð mikil hláturterapía.

Kattarrófurnar fóru í árlegu læknisskoðunina sína í gær. Dýralæknirinn sagði að þær væru fallegustu kettirnir í Reykjavík eða svona næstum því. Það gladdi móðurhjartað.


Þegar allt fer á mis

2008-05-06 14:01  Blog

Dagurinn í dag stefnir í það að verða einn þeirra daga sem ég hef ekki hug á að nota aftur. Ég byrjaði á því að sofa yfir mig. Þegar í vinnuna kom fann ég engan sem ætlaði á hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins og gæti þannig tekið með sér upptökutækið sem þar þarf að vera. Leitin tók hinsvegar það langan tíma að ég missti af strætónum sem ég ætlaði að taka til tannlæknisins og þurfti að veifa mér leigara. Tannlæknirinn boraði í tönnina mína en sökum tímaskorts gafst ekki tími til að taka allan þann pakka sem hann hafði ætlað að taka. Ég þarf því að koma aftur og augljóslega fylgir því eilítið meiri kostnaður. Þannig er það bara.

Frá tannlækninum tók ég strætó upp í Þjóðminjasafn en þar sem ég þurfti að skipta gafst tveim strætóum færi á að vera á eftir áætlun og slík færi nýta strætóbílstjórar ávallt þegar ég er á ferð. Hlemmur vakti með mér viðbjóð og ég varð of sein upp á Þjóðminjasafn og upptakan sem ég ber ábyrgð á er því upphafslaus sem er leim. En þó svo löng þar sem fyrirlesturinn var í lengri kantinum að ég missti af hádegismatnum í vinnunni og þurfti að borða dýra og vonda langloku.

Svona skipast veðrin skjótt í lofti. Í gærkvöldi sat ég á Orange og borðaði hörpuskelspylsu, reyktan ál með chili, engifer og blómkáli, humar og kampavínssúpu, þorsk og saltfisk með baunamauki, mjólkurkálf, hvítt súkkulaði og köku sem sprakk í munninum á mér með mangó, mangófrauði og bláberjum. Svo gekk ég um höfnina í kvöldsól í fyrirtaks félagsskap.


Sörpræs í sósunni?

2008-05-05 13:51  Blog

Mig dreymdi undarlega drauma í nótt. Sveppa- og berjatýnslu, fjallgöngu, hringferð um landið og matarboð. Sem í sjálfu sér er ekkert undarlegt en samhengið sem þessir atburðir áttu sér stað í var skrýtið, afskaplega skrýtið. Mögulega var mig að dreyma fyrir hádegismatnum í mötuneytinu í dag: fram var borið leynikjöt í karrýsósu og grjónum og ég hafði það á tilfinningunni eftir sögu Sólveigar að ég væri að borða ísbjörn.

Nágrannasamvera

2008-05-04 14:00  Blog

Fyrir nokkrum dögum báru nágrannar mínir, þau Bryndís og Garðar, út dreifibréf í húsin sem umlykja stíginn á milli Seljavegs og Framnessvegar. Í bréfinu voru íbúar hvattir til þess að koma út á laugardag og taka til á stígnum og í görðum. Þegar ég leit út um gluggann í hádeginu í gær var auðvitað ekkert að gerast. Um eittleytið sá ég hinsvegar Bryndísi og Garðar og annað fólk úr húsinu þeirra farið á stjá og ákað að drattast út. Og eftir því sem leið á daginn fjölgaði fólki og sólin braust fram úr skýjunum. Garðarnir voru hreinsaðir, stígurinn snyrtur og sópaður, málað yfir veggjakrot og sumir klifruðu upp í stiga og söguðu brotnar greinar af trjám. Nágrannar töluðu saman og kynntu sig, spurðu út í móttökuskilyrði sjónvarpsútsendinga, ástand frárennslislagna og yfirstandandi framkvæmdir í hinum og þessum húsum. Þeir sem lengst hafa búið við stíginn sögðu sögur af horfnum nágrönnum og útskýrðu hvernig garðar og hús litu út fyrir löngu. Einhver kom með kerru og rusl og drasl var flutt á Sorpu í akkorði. Annar bar út á stíginn garðborð fullt af gosi og sætindum til að hressa mannskapinn við. Þriðja húsið reddaði stærsta kolagrilli sem ég hef séð og um sjöleytið var fírað upp í því og haldin þrjátíu manna grillveisla í skjólgóðum garði. Þaðan fór ég í bjór og eplasnafs í húsi á Framnesveginum og kom ekki heim til mín fyrr en tvö. Í morgun leit ég út um gluggann og í stað þess að sjá unglingsstúlku ganga stíginn vissi ég ekki aðeins hvað hún heitir og hvar hún býr heldur kann ég líka deili á foreldrum hennar og veit að þau eru frábærir nágrannar.

Laun syndarinnar?

2008-04-30 10:19  Blog

Í nótt dreymdi mig stóra loðna köngurló. Hún hafði skriðið upp í munninn á mér meðan ég svaf og í draumnum vaknaði ég með hana hálftuggna uppi í mér. Ég reyndi og reyndi að spýta henni út úr mér en hún var límkennd og seig og ég var lengi að losna við tætlurnar af henni út úr mér. Innyflin voru hvað verst, þau flutu um munninn á mér, lítil og hörð eins og grænjaxlar. Við þessi ósköp öll vaknaði ég svo loks til raunveruleikans og var þá búin að slefa og tuffa út allann koddann minn og hægri öxl.

Það síðasta sem gerðist í draumnum áður en ég gleypti köngurlóna var að ég var í heitu keleríi við sætan strák. Eflaust má leggja út af atburðarás draumsins á ýmsan freudískan hátt.


Framtíðin er svo björt

2008-04-26 18:46  Blog

Framtíðin er svo björt að sólgleraugna er þörf Framtíðin er svo björt að sólgleraugna er þörf

Finnland er landið fyrir mig

2008-04-24 21:34  Blog

Ég er í Finnlandi og nenni sko alls ekki að blogga um það fyrr en ég kem til baka. Finnst samt fyrst ég þurfti að fara á netið að vinna smá að ég verði að taka það fram að ég átti frábæran afmælisdag, ráðstefnan gekk vonum framar og ég er búin að hafa það gott hérna í Múmíndal. Ég fór í sánu, synti í Eystrasaltinu, sá stjörnuhrap og íkorna, drakk súkkulaðibjór í kvöld og borðaði þurrkuð blóm. Á morgun tek ég viðtal við kúl finnskan sagnfræðing, stefni á að skoða tvö söfn og sigla út í eitt stykki eyju sem er á heimsminjaskrá Júneskó. Og, ég er búin að kaupa mér nokkur pör af skóm. Lífið gæti ekki verið skemmtilegra nema mögulega ef maður mætti taka kisurnar sínar með sér til útlanda. Þær hefðu virkilega gaman af allri síldinni hérna.

Birt víðar

Fræðalestur

Fræðavefur

Fræðaviðburður

User:
Pass:

Mússíkin

Vefsíðan

Viðburðurinn

Bíóið

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site


(C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!