Nokkrir punktar
2008-07-03 11:55 Blog
Ég er ánægð með verðandi ritstjóra Stúdentablaðsins og hef trú á því að blaðið eigi nú í fyrsta sinn í mörg ár möguleika á því að verða eitthvað annað en hálfvelgja.
Ég er mjög sátt við að það rigni. Það er auðveldara að skrifa í rigningu. Og ykkur til upplýsingar þá gengur vel að skrifa.
Ég er ánægð með kettina mína. Þær eru sykurmýs. Blixa hefur komið sér fyrir í gluggakistunni fyrir aftan skrifborðið mitt og liggur þar malandi mér til samlætis meðan ég skrifa. Hafmey kúrir sig á púða á gólfinu sirka meter frá mér.
Mér finnst ís góður. Í gær borðaði Hafdís með mér og svo gengum við út í ísbúð Vesturbæjar þar sem hún gerði grín að mér fyrir að hafa einfaldan smekk.
Í nótt dreymdi mig ég væri blaðberi í Frakklandi. Það sem gerði málið erfiðara var að mér til leiðbeiningar í nýrri vinnu hafði ég ekki kort heldur gamla túristahandbók og margar gatnanna höfðu frá því bókin var skrifuð og hverfið hafði byggst upp skipt um nafn.