UNNUR 2.0
Bitra Internetmamman snýr aftur

Róbótar og kynlíf

2006-06-24 09:34  _Netlestur_

Þema Nerve þessa dagana er framtíðin. Tvær af smásögum eru meira að segja nokkuð góðar. 50 ways to Leave Your Live-in Robot Lover fjalllar um nörd sem í uppfærsluæði sínu gefur róbótaástkonu sinni óvart meðvitund og sér hana hnykla brýrnar í fyrsta skiptið. Sú saga leynir á sér, fyrst fannst mér henni vera slúttað á frekar ódýran hátt og þá m.a. með tilliti til þess að í framtíðarþjóðfélaginu sem hún lýsir þá eru það aðeins nördar sem hafa skerta félagslega hæfileika sem eiga róbótaástkonur og misnota þær (sem er nákvæmlega hvernig er fjallað um Real Doll fyrirbærið) í stað þess að velt sé upp þeim möguleika að kannski gæti félagslega fatlað fólk öðlast einhver þroskatækifæri í gegnum meðvitaða róbóta? Sem reyndar þýðir líklega einfaldlega að höfundur sögunnar sjái eigingirnina sem kjarna mannlegrar meðvitundar. Allavega, það var ekki fyrr en mörgum klukkutímum eftir að hafa lesið söguna sem það hvarflaði að mér að titillinn, sem miðað við atburðarás virkar frekar skrýtinn, - soldið eins og höfundurinn hafi verið að rembast of mikið við að vera sniðugur og kvóta popplagatexta, vísar hugsanlega í það hvernig fólk ómeðvitað tekur sig oft til og fokkar upp þægilegum sambandsrútínum áður en það einu sinni gerir sér grein fyrir að það vilji breytingar. Og hugsanlega í framhaldi af því má hugsa sér að orðið ,robot' í titlinum vísi þá ekki til vélmennisins heldur til hins vanafasta eiganda. Hugsanlega...

Seinni sagan, Love American Style inniheldur ekki róbóta heldur er einföld og smellin Vonnegutísk frásögn af breyttum (en þó ekki) siðferðisgildum framtíðar Ameríku. Ef maður hefur unnið í bókabúð og þekkir þar af leiðandi nöfn helstu (öhm... allra reyndar í sjónminnistilfellinu mínum.) karaktera í slúðurblöðum hefur maður enn meira gaman af þessum lestri.

Róbótar og réttur þeirra til að segja nei virðast annars vera í umræðunni þessa dagana. Róbótavísindamenn reikna með því að við munum sjá meðvitaða róbóta fyrir 2020 og EURON (European Robotics Research Network) hélt einmitt nýlega ráðstefnu í Genúa þar sem umræðan snerist um asimovskar pælingar um réttindi kynlífsróbóta. Þegar ég las þetta duttu mér allskonar ósmekklegir brandarar í hug til að segja um vondu vondu kvikmyndaútgáfuna af I Robot. En ég ætla ekki að segja þá hér.


Eldri fćrslur í ţessum flokki

  2005-06-09 11:44    Mamie Van Doren     _Netlestur_
  2005-05-05 15:42    Oh! Wicked Wanda!     _Netlestur_
  2005-03-29 15:56    Fluxblog     _Netlestur_
  2005-03-01 16:32    Caoine     _Netlestur_
  2005-03-01 16:32    Caoine     _Netlestur_

Birt víđar

Frćđalestur

Frćđavefur

Frćđaviđburđur

User:
Pass:

Mússíkin

Vefsíđan

Viđburđurinn

Bíóiđ

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site


(C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!