Um samhengið milli spengilegs vaxtar og loðinna leggja Baðhússkvenna
2002-11-07 12:17
Nú kynnu einhverjir að hugsa að þetta sé nú ekki mikið vandamál og varla heimsendir en þetta er hinsvegar eitthvað sem pirrar mig engu að síður ekki bara afskaplega heldur líka daglega og þar af leiðandi líklega líka flestar þær konur sem eins og ég taka sturtuna sína þarna alla virka daga. Enn meira óþolandi er að stjórnendur Baðhússins hafa enn ekki látið svo lítið að útskýra hversvegna bannið er tilkomið. Sjálf get ég ekki séð neina lógíska ástæðu fyrir banninu. Varðandi stíflur væri nefnilega miklu árangursríkara að banna síðhærðum konum að þvo sér um hárið eða banna skrúbbkrem sem innihalda yfirleitt mulda apríkósukjarna eða annað dót sem jafngildir því að safna sandi í niðurföllin. Það sem fellur til við reglubundinn fótleggja eða handarkrikarakstur er hinsvegar ekki til þess fallið að stífla niðurföll, a.m.k. ekki miðað við þær reglulegu niðurfalla og vatnslásagreiningar sem ég hef stundað í hinum ýmsu baðherbergjum víðsvegar um evrópu síðastliðin 8 ár. Ég myndi eiginlega ganga svo langt að halda því fram að eins til fimm millimetra löng hár séu líklega það eina sem er nokkuð bókað að renni óhindrað út í sjó.
Því er eina lógíska niðurstaðan sú að um leið og Linda fór til Ameríku hljóti hópur eitilharðra bókstafstrúarfeminista að hafa tekið reksturinn yfir og séu að reyna að kenna okkur að loðið sé betra. Annað hvort það eða að stjórnendur Baðhússins eru að vona að við gefumst upp á að finna tíma fyrir eilífar sturtuferðir og verslum okkur mánaðarlega vaxmeðferð á snyrtistofunni í kjallaranum. Hverju sem liður þá er það skítt og ég vona að sá sem fann uppá þessari bannsettu vitleysu fái loðna kartöflu í skóinn allan desember...