UNNUR 2.0
Safnar köttum

Jólin mega bara alveg fara að koma

2002-12-17 16:10

Við erum bara búin að fá eitt jólakort. Sem er frábært því að við stefnum á að klára okkar í kvöld og senda út á morgun sem þýðir að þessi jól mun það vera extra sannfærandi að við séum ekki að senda nein samviskubitsjólakort.

Samviskubitsjólakort heita í orða bókinni minni þessi jólakort sem berast fólki sem maður hittir sjaldan, t.d. föðursystkinum, tveim til fimm dögum eftir að það hefur sent manni kort og eru í paranojuheiminum mínum ekki að virka sem mjög sannfærandi vináttuvottur. Soldið meira bara svona eins og maður hafi fengið samviskubit við að opna jólakortið frá viðkomandi og fundist maður þurfa að senda þeim. Mér líður allavega oft pínulítið þannig þar sem ég skrifa og póstlegg jólakortin mín yfirleitt ekki fyrr en á síðasta sjéns.

Mér finnst btw. mjög gaman að föndra og skrifa og skreyta jólakort og ætla á hverju ári að taka mig til og ganga frá þeim í nóvember en einhverra hluta vegna gengur það aldrei upp.

Svo í kvöld ætla ég að strengja jólakortasnúruna yfir eldhúsgluggann, eða kannski í þetta skiptið á ganginum, og gala yfir henni jólakortaseiðinn og þá ættu jólakortin að flæða inn næstu daga ;) Kannski að við dröslum jólatrénu líka inn í stofu í kvöld, held það sé einmana þarna úti í skúr.

Við bökuðum eina nýja tegund síðasta sunnudag og meira af rúsínukökunum. Þannig að núna svigna hillurnar á nýjan leik undan kökuboxunum og við erum reddí að taka á móti öllum þeim jólagestum sem láta sjá sig...

Jólatiltektin fór sömuleiðis fram síðasta sunnudag. Slógum sko tvær flugur í einu höggi, tókum til fyrir matarboðið og fyrir jólin. Hengdi líka upp bæði jólaskrautin ;) Auðvitað þurfum við örugglega að taka smá til á þorláksmessu, þurrka af og skúra smá en ef við höldum rétt á spöðunum ætti allt að vera ennþá sæmilega í röð og reglu eftir viku.

Jólagjafirnar eru allar annað hvort komnar oní jólagjafakassann eða ákveðnar og bara eftir að ná í þær í búðina. Í ár tókst okkur að standa við að setja okkur ekki á hausinn en vera samt sæt. Innpökkun ætti að hafast um helgina og um helgina ætla ég líka að bara sörur með Jóa af því ég elska sörur :)

Ég stend í samningaviðræðum við Gallerí Kjöt um að fá eins og eina tutlu af hreindýri, þekki því miður enga skotveiðimenn. Vonandi fæ ég kjöt hjá þeim, mig hefur alltaf langað að smakka hreindýr og fyrst við verðum bara tvö þá tímum við að kaupa það í jólmatinn.

Þannig að þessi jól mega alveg fara að koma. Held okkur sé ekkert að vanbúnaði að gera vel við okkur og aðra yfir hátíðirnar :)


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!