Einstaklingsframtak
2003-01-26 19:08
Eins og fram hefur komið stal eitthvað pakk öllu úr veskinu mínu á Sirkus síðasta föstudagskvöld, bæði kortum og nýkeyptum 3ja mánaða strætópassa og líka málningardóti og bókasafnskorti. Ég hringdi um leið og ég fattaði þetta, sem var held ég mjög fljótlega, í bankann og lét loka kortinu en morguninn eftir hafði samt verið eytt og eytt af debetkortinu mínu á tveim börum og pöntuð pitsa.
Ólíkt blóðheitu mér er Bjarni nógu stóískur til að geta hugsað um eitthvað annað en líkamsmeiðingar í svona tilfellum og fattaði þessvegna að það væri mögulega hægt að fá uppgefið hjá pitsafyrirtækinu hvert þjófstolna pitsan hefði verið send. Starfsfólk Hróa Hattar var eiginlega bara einstaklega liðlegt og hjálpsamt þegar það heyrði um vandræði okkar og leitaði þangað til það fann upplýsingarnar og hringdi svo aftur í okkur. Bjarni hringdi svo í íbúðareigandann og bauðst til að gera ekki lögreglumál úr þessu ef íbúðareigandinn gengi í það að hjálpa okkur að fá dótið mitt og peninginn til baka.
Strákurinn sem átti íbúðina var ringlaður og þunnur í símann og sagði að hann hefði verið með míní eftirpartý kvöldið áður, vinur hans, kærasta vinarins og einhver ókunnugur strákur í eftirdragi vinarins hefðu komið heim til hans og pantað pitsu og ókunnugi strákurinn hefði borgað. Hann ætlaði að athuga málið.
Hann hringdi aftur innan skamms og tadamm... þessi dularfulli ókunnugi strákur hafði skilið allt dótið sem hann hafði plokkað svo samviskusamlega úr veskinu mínu, þar með talinn strætópassann minn, eftir áður en hann lét sig hverfa sporlaust út í nóttina. Þvílík tilviljun!
Íbúðareigandinn bauðst til að borga mér eitthvað af peningunum úr eigin vasa strax og hann myndi svo bara sjá um að finna ókunnuga strákinn og rukka hann og reyna að redda restinni af peningunum mínum.
Ég verð að játa að ég held að ókunnugi strákurinn sé einhverskonar huldumaður. Ef íbúðareigandinn væri fullkomlega saklaus og hinn meinti ókunnugi strákur væri til myndi maður þá ekki bara taka því að löggan yfirheyrði mann og þessi ókunnugi strákur sem hann veit ekki einu sinni hvað heitir og hann á engar skyldur við lenti í súpunni? Mér væri allavega alveg sama...
Þar að auki rímuðu báðar úttektirnar sem var stolið á Sirkus við bjór handa þremur.
Ég fór eftir bókasafnsrölt seinnipartinn í gær og innheimti. Íbúðareigandinn borgaði mér sexþúsundkall í og sagðist ekki eiga meira. Ég gaf honum frest fram að mánudagskvöldi til að finna huldumanninn og redda mér restinni af peningunum mínum og þá skyldi ég bara hringja í Visa og segjast hafa fundið kortið mitt. Annars myndi ég hringja og gera vesen yfir þessu. Urr bara sko...
Strákurinn var voða mikið að segja að hann væri saklaus og voða blankur og blablabla, en ég á bágt með að trúa því að ef það sé satt vilji maður frekar borga tæpan ellefu þúsund kall frekar en að segja lögreglunni að maður sé saklaus. Ég var á nippinu með að segja honum að heyrðu vinurinn, ég held þú sért nú ekki að gera mér neitt góðverk með þessu en stillti mig.
Bjarni reyndar hringdi í lögguna og spurði hvernig svona mál myndi fara og löggan sagði að fyrst við værum með pitsuadressuna þá yrði íbúðareigandinn strax kallaður inn í yfirheyrslu og gert mál úr þessu. Ég myndi samt auðvitað fá dótið mitt seinna til baka með þeirri aðferð þannig að mér finnst þannig séð alltí lagi að gera þetta svona. Þótt það ætti auðvitað að kæra svona lagað. Það er, eins og Jói sem kom með mér sagði, ekkert í lagi að stela peningum annars fólks og eyða þeim...
Það liggur við að mig langi til þess að hann borgi mér ekki restina til að ég geti kært hann. En ég er ekki alveg það fjáð að ég vilji velkjast eitthvað í vafa um að fá peninginn minn til baka þannig að vonandi stendur hann við sitt.