Stóra bókasukkið
2003-03-12 19:42
Það er aðeins eitt sem er betra en kynlíf og súkkulaði og það er að kaupa bækur. Og í dag keypti ég í Góða Hirðinum og á bókaútsölunni í Eymundson samtals 14 gæðabækur. Herlegheitin kostuðu mig fimmþúsund fimmhundruð fimmtíu og tvær krónur og mig klæjar í lestrarbeinið að hefja lesturinn. Sé fram á að þurfa að hætta að drekka og djamma um stund til að geta kúrt heima í sófa að lesa :)
Upptalningin hljómar á þá leið:
- The Diary of a Nobody eftir George & Weedon Grossmith
- Moll Flanders eftir Daniel Defoe
- Narrative in Fiction and Film eftir Jakob Lothe
- Rich Relations eftir David Reynolds
- Adulterers Anonymous eftir Lydiu Lunch og Exene Cervenka
- Méharées eftir Théodore Monod
- Men and Sex eftir Bernard Zilbergeld. Ég sá alveg fyrir mér karakterins hans Tom Cruise í Magnolia við það að lesa aftan á þessa bók. Held hún sé fyndin. Kannski er það misskilningur hjá mér en hey, þetta er þá bara misskilningur uppá fimmtíu krónur...
- Xenophobe's guide to the Danes
- Hold kæft og vær smuk eftir Vitu Andersen
- The Fatal Englishman eftir Sebastian Faulks í reyndar annarri útgáfu en ég linka á.
- Fear of Flying eftir Ericu Jong. Ekki þessa útgáfu sem ég linka á reyndar heldur gamla útgáfu frá Signet.
- Sex American Style sem er safn greina úr Playboy, gefið út 1971. Ég er ekki frá því að þetta geti reynst athyglisverð lesning bæði fyrir feministann og sagnfræðinginn í mér samanber: One of the best tools we have had in breaking down the barriers between marriage partners is, when an argument occurs, for the wife to take off her clothes immediately Mjög fyndið svo ekki sé meira sagt en hey, þetta er svosem make love not war tímabilið... Bókin virðist reyndar ekki bara innihalda geldar hugmyndir um kynhegðun heldur einnig tvær greinar um kynlíf og lagaumhverfið og aðra um kynfræðslu sem ég hlakka sérstaklega til að lesa og bera saman við það sem er að gerast í dag. Við skulum nefnilega ekki gleyma því að án hinna fjáðu klámhunda Playboy og Hustler þá er ekkert víst að Ameríkanar í dag væru svona sjaldan settir í fangelsi fyrir að stunda t.d. munnmök með viljugum félaga. Þessir sömu klámhundar hafa einnig verið ötulir stuðningsmenn bæði getnaðarvarnapillna og frjálsra fóstureyðinga.
- The Just/The Posessed eftir Camus
- Death of a Salesman eftir Arthur Miller