It's a boy!
2003-07-02 12:53
Við Bjarni eignuðumst heilbrigðan lítinn dreng í morgun. Hann vegur, öhm... líklega nokkur hundruð merkur og heilsast eftir því sem ég best veit vel. Ætli það sé ekki til marks um hversu tæknivædd við erum að ég svaf þetta af mér og hafði ekki hugmynd um mitt nýja hlutverk fyrr en mér var tilkynnt það í tölvupósti.
Sjá nánar hér
Ég hugsa að ég láti það verða eitt af mínum fyrstu verkum sem nýbakað foreldri að horfa á Twin Peaks með afkvæminu. Ef einhver vill melda sig með í ósómann þá fer það að verða síðasti sjéns :)