UNNUR 2.0
Safnar köttum

Verslunarmannahelgi

2003-07-31 14:59

Bara til að hafa það á hreinu þá er ég ekki á leiðinni út úr bænum um helgina. Ég ætla þvert á móti að njóta þess að hafa það rólegt og notalegt í góða veðrinu sem er spáð hér í borg óttans um helgina. Grilla kannski, held að sunnudagurinn sé tilvalinn grilldagur. Leika við Urði sem verður í heimsókn. Fara á innipúkann og drekka bjór. Lesa skólabækurnar mínar úti ef veðrið verður nógu gott. Njóta þess að meirihluti vina minna er eins sinnaður og ég og verður í bænum.

Það er örugglega merki um fordóma en ég er alveg að fíla það að eina helgi ári sé miðbærinn svo til laus við markhóp hefðbundinna útihátíða. Ég ætla ekki að útskýra það neitt nánar því annars myndi ég ábyggilega móðga einhvern.

Ekki það að ég hafi neitt vit á þessu. Ég skaddaðist varanlega á því að fara sautján ára gömul á Hróarskeldu í besta veðri sem hefur nokkurntíman verið þar og með frábæru line-öppi og gat eftir það engan vegin hugsað mér að eyða pening í að kúldrast í tjaldi í rigningu með skítamóral eða sálina í eyrunum. Hef bara haldið mig við Hróarskeldu síðan. Þannig að ég veit auðvitað ekkert um hvað ég er að tala. En það hefur nú svosem ekkert þaggað niðrí mér hingað til ;)


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!