UNNUR 2.0
Safnar köttum

Viðbjóðslegur dagur

2003-09-03 13:58

Það er allt búið að ganga á afturfótunum í dag. Svaf of mikið í morgun, íbúðin mín er í rúst og ég hef ekki nennu til að laga til í henni og finn því ekki einföldustu hluti. Heimasíða háskólans er fávitadrasl og svo þung og ofhlaðin að hún virkar í hvorugri tölvunni heima og því var engin leið fyrir mig að sjá heiman að frá mér klukkan hvað og hvar kúrsinn sem ég er að fara í í dag er.

Ég skellti skúffu á þumalputtann á mér og labbaði uppí Háskóla. Kom við á póstinum að ná í pakka. Pantaði mér boli um daginn sko. Á innihaldslýsingu pakkans stóð 3 T-shirts, value 15$. Konan á póstinum heimtaði 1090 í virðisaukaskatt áður en ég fengi pakkann afhentan. En það var ekki hægt að borga með Visa og debitkortið var heima svo ég þurfti að fara í banka að taka út pening. Þegar ég fékk pakkann afhentan var enginn reikningur meðfylgjandi svo ég fékk engan botn í þetta. Væntanlega var hann uppí tolli. Hvernig virðisaukaskattur af 15 dollurum getur verið rúmlega þúsundkall er ofvaxið mínum skilningi, svona fyrir utan að fávitarnir hjá tollinum vaska reyndar alltaf sendingarkostnað sem ég er ekki að skilja. En ég nennti ekki að spyrja konuna sem hafði hnussað framan í mig þegar ég dró upp visakortið og sagt að það væri ekkert hægt að borga með þessu. Mér finnst samt að maður eigi að fá reikninginn sinn eða að minnsta kosti afrit af honum.

Uppá bókasafni beið ég í hálftíma eftir tölvu til að komast í stundaskrána. Átti erfitt með að rjúka ekki bara í einhverja af tölvunum sem fólklausu jakkarnir voru að nota. Komst svo að því að tíminn er ekki fyrr en klukkan fjögur. Ég er ekki með neitt nesti af því ég er búin að vera of stressuð til að fara í bónus og svona. Auk þess hefur ekki verið neitt borðpláss í eldhúsinu til að smyrja nesti. Allt útí málningardóti og hlutum sem var verið að bjarga frá málningarvinnu.

Viðbjóður. Og svo líður mér út af stöffi eins og ég sé með fallexi hangandi yfir hálsinum á mér.

Djöfuls viðbjóður. Og ég er svöng.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!