UNNUR 2.0
Safnar köttum

Nú er ég orðin bílafólk

2003-10-31 12:14

Hnuss! Ég myndi nú bara vilja skora á Dömustaði að hafa það af að vera brosandi og hressar klukkan sjö á morgnana áður en þær fara eitthvað að kvarta. Pffftttt... ég svaf yfir mig og vaknaði við það að ég átti að vera í beinni útsendingu eftir tuttugu mínútur og hljóp um húsið eins og brjálaður múmínálfur að reyna að finna einhver föt sem væru frambærileg og fékk hvorki vott né þurrt og var svo dembt inn í beina án þess að vera sagt hvort það ætti að spyrja mig einhverra spurninga eða hvað þetta ætti að vera langt og já, auðvitað var ég eins og svefndrukkið dádýr!

Þetta tók nú annars sársaukalaust af. Ég hafði hálfpartinn átt von á því að þáttastjórnandinn myndi veifa bíllyklunum fyrir framan nefið á mér og láta mig hoppa upp og niður og reyna að grípa þá á meðan hann spyrði mig: Hver er besta líkamsræktarstöðin í bænum ha? Ha? Sem betur fer hafa fæstir þó jafn sjúkan húmor og ég.

En, já, eins og sumir vita kannski þá vann ég semsagt afnot af nýjum bíl í heilt ár í einhverju útdráttarlottói í Baðhúsinu. Fönkíasssjittsko, ég vinn aldrei neitt svona fyrirhafnarlaust sko. Kannski af því ég tek eiginlega aldrei þátt í happdrættum, það gæti alveg haft eitthvað með það að gera? Ég þarf reyndar að fara í einhverjar myndatökur í staðinn en ég er svo mikill Zoolander að ég rúlla því nú léttilega upp ;)

Þetta var annars mjög óvæntur vinningur. Það var hringt í mig í gær bara rétt áður en ég fór á kóræfinguna og ég þurfti þessvegna að láta Bjarna hringja til baka til að spyrja um dótið sem ég gleymdi að spyrja um eins og einhver voða ósjálfstæð kona. Mér fannst annars ekkert sjálfgefið að þiggja vinninginn og þurfti að hugsa mig um. Þetta er rekstrarleiga þannig að við þurfum að borga tryggingar uppá ca. 7 þúsund á mánuði og svo auðvitað bensín. Og okkur hefur einmitt fundist rekstur bíls of dýr til að týma að eiga bíl hingað til. Við plumum okkur svo ágætlega án bíls, sérstaklega vegna þess að ef við virkilega þurfum bíl er auðvelt að leita á náðir tengdó sem eru tveggja bíla fólk. Fyrir utan það að með því að keyra meira er maður í meiri slysahættu auðvitað og maður djammar nú ekki mikið ef maður er slasaður eða dauður. Við ákváðum hinsvegar á endanum að taka þessu. Þetta er glænýr bíll og allt annað en tryggingar og bensín (og vinnukostnaður við sumardekkjayfirsvissun) innifalið þannig að þetta er ágætis tækifæri til að prófa að ,,eiga" bíl í eitt ár. Við stefnum þó að því að breyta sem minnstu, ég ætla að halda áfram að labba í skólann og svona, en ferðir sem við Bjarni höfum verið að fara tvö saman með strætó er líklega ódýrara að fara í bíl og svo er fullt af hlutum sem væri gaman að gera ef maður ætti bíl sem við getum auðvitað núna farið að gera. Tildæmis, ef við gefum okkur að það snjói eins og ég er búin að ákveða að muni gerast, þá verður miklu auðveldara að vera brettastelpa. Og hver veit nema við rúntum núna í einhverjar skemmtilega dagsferðir og svona og heimsækjum fleira fólk sem við myndum annars síður heimsækja :)

Annars er þetta voða sætur bíll og ljúft að keyra hann. Þetta er svona þriggja dyra Renault Megane með allskonar tölvufídusum. Hell, ég get víst meiraðsegja tengt gemsann minn við hann og lesið sms-in mín á skjá í mælaborðinu! Og hann er með geislaspilara sem er æði. Ég sé alveg fyrir mér að görkrú geti rúntað á þessu sko...

Ég fór beint heim eftir Íslandíbýtið og fékk mér meira að sofa. Ég nefnilega þarf að vera vakandi gestgjafi í Hrekkjavökupartíinu í kvöld.

Það er spúkí að vera orðin bílafólk. Ég finn að mig langar soldið út að klappa bílnum mínum...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!