UNNUR 2.0
Safnar köttum

Söngfuglar

2003-12-01 14:03

Ég og restin af Háskólakórnum vorum að syngja fyrir forsetann áðan á fyrsta des hátíðarhöldum Háskóla Íslands. Einhver í kórnum var svo sniðugur að telja gestina meðan við stóðum og biðum eftir að fá að hefja upp raust okkar og niðurstaðan var sú að alls drógu hátíðarhöldin að sér um 26 manns sem allir, forsetinn meðtalinn, litu út eins og þeir væru bæði með tannpínu og þyrftu að pissa. Ég vona að Páll Óskar og Monika hafi náð að hressa uppá stemmninguna, annars held ég að það sé bara málið að leggja þessi hátíðarhöld niður eða eitthvað.

Þess má geta að í síðasta mánuði sungum við fyrir forsætisráðherrann við afhendingu íslensku gæðaverðlaunanna. Hann var öllu hressilegri og gestirnir mun fleiri. Enda var líka frítt bús á eftir þeirri athöfn...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!