Medíafrensí og jómfrúargigg
2004-02-16 00:41
Föstudagskvöldinu eyddi ég svo út á Granda í miðasölunni fyrir fyrri Harum Scarum tónleikana. Vann með Siggu eins og venjulega þannig að þegar lunginn af tónleikagestunum var mættur á svæðið gátum við skiptst á að njóta tónleikanna. Algert veisla sko. Svo á eftir var eitthvað bjórhangs með vinum heima hjá mér en ég var svo útkeyrð að ég sofnaði bara í sófanum og gleymdi meiraðsegja að drekka seinni bjórinn minn.
Laugardagurinn fór í æfingu, rót, sándtjékk... Svo gleypti hluti af Brúðarbandinu í sig bjór og nammimat á Næstu Grösum og svo rann stóra stundin uppp og við spiluðum og var fáránlega vel tekið (fannst mér, ég var ekkert viss um að fólk myndi hafa jafn gaman af lögunum okkar og við höfum af þeim) og það var svo gaaaaaaaaman! Sjitt hvað það var gaman! :) Það voru meiraðsegja ungir menn sem hentu yfir okkur hrísgrjónum milli laga! Snilld!
Svo eftir tónleikana labbaði ég um í einhverskonar spennufallsblissi og samkjaftaði ekki um hvað ég væri glöð. Líklega skulda ég öllum þeim sem ég ræddi við afsökunarbeiðni fyrir málæðið en, já, sjiii.. ég var og er svo stolt af okkur að hafa tekið þessa hugmynd um hljómsveitina og bara massað hana á tveim mánuðum :)
Ég gafst upp á djamminu um fimmleytið og fór heim að sofa. Restin af hljómsveitinni djammaði eitthvað lengur og ég fékk smá bömmerkast yfir því í morgun að hafa ekki haldið aðeins lengur út, kvöldið var nefnilega soldið eins og jólin eða eitthvað þegar maður vill að stundin endist sem lengtst ;) En það verður ábyggilega gleði líka eftir næstu tónleika, hvenær sem þeir verða :)
Dagurinn í dag var svo sá rólegasti og huggulegasti sem ég hef átt lengi. Fór í göngutúr og Kolaportsleiðangur með Bjarna, hitti endalaust af indælu fólki sem ég þekkti niðrí bæ á röltinu, keypti mér Sid Viscious bol, rótaði í rólegheitum, tókst að finna allt dótið sem ég skildi eftir á Grandrokk í gær, fór í óvænt og afskaplega indælt matarboð til Loga og er svo búin að tölvast og læra til skiptist í kvöld. Mjög kósí bara.
Annars er skrýtið að það sé ekkert hljómsveitardeadline fram undan. Síðustu vikur hafa einkennst svo mikið af því. Ekki það að það sé ekki notalegt, það er bara svo framandi tilfinning ;) Næstu vikur eru planaðar í að bara tjilla og spá í nýju dótir og fínpússa lögin sem við eigum og já, bara leika okkur og hafa gaman að því að spila saman. Og það verður aldrei aftur svona span eins og fyrir HarumScarum að negla saman nógu mörg lög til að geta spilað gigg. Eiginlega er það sem ég er stoltust af að Brúðarbandið skuli hafa lifað svoleiðis álag af án þess að klóra augun úr hverri annarri eða verða veikar af þreytu ;)
Allir að muna svo að horfa á Mósaík næsta þriðjudagskvöld. Ég frétti að okkur hafi meiraðsegja brugðið fyrir í sjónvarpinu í kvöld í einhverri kynningu á næsta Mósaíkþætti. Medíafrensí dauðans sko... :)