UNNUR 2.0
Safnar köttum

Geek Love

2005-02-17 20:57  _Bókin_

Geek Love er bók sem Bjarni er búinn að vera með í láni allt, allt of lengi. Sigga gaf mér hana í útskriftargjöf þegar ég fékk sagnfræðingaskírteinið mitt. Geek Love er skemmtilega skrítin. Eiginlega skrýtnasta bók sem ég hef lesið lengi. Fljótlega ætla ég að hirða hana aftur að Bjarna og byrja að þröngva fleiri vinum mínum til þess að lesa hana. Svo þarf ég líka sjálf að lesa hana aftur.

Bókin gerist bæði í fortíð og nútíð og það er dvergurinn og kroppinbakurinn Olympia sem rifjar upp uppvaxtarár sín en foreldrar hennar, Al og Cristal Lil, ráku fjölleikafarandsýningu sem ferðaðist um Bandaríkin. Fjölskyldan starfaði öll við sýninguna og höfðu foreldrarnir lagt mikið á sig með tilstilli efnakokteila sem Cristal Lil neytti á meðgöngunni, til að eignast sem undarlegust börn. Þannig samanstóð systkinahópurinn auk Olympiu af Arturo fiskidreng, hinum músíkölsku síamssystrum Electru and Iphigeniu og yngsta barninu Fortuno sem í æsku var næstum því skilinn eftir á bensínstöð sökum þess að vera of venjulegur til að vera annað en smánarblettur á fjölskyldunni. Sagan rekur svo ástir og átök, metnaðargirni og valdagræðgi, stofnun afskaplega undarlegs sértrúarsöfnuðs og svo auðvitað endalok þessa alls. Jafnframt endurminningum Olympiu fjallar bókin svo um það hvernig hún reynir að halda verndarhendi yfir dóttur sinni (sem veit alls ekki hver móðir hennar er) og hvernig Olympia reynir að koma í veg fyrir að dóttirin þiggi tilboð frá undarlegri konu sem hefur áhuga á því að borga henni fyrir að fá að horfa á lækni nema rófu sem dóttirin fæddist með á brott. Bókin keyrir samt ekki bara á undarlegheitum þótt það sé nóg af Þeim heldur er hún afskaplega vel skrifuð og höfundinum, Katharine Dunn, tekst að skrifa um atburði sem að einhverju leyti eru fyrirsjáanlegir þannig að maður getur varla lagt bókina frá sér.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!