UNNUR 2.0
Safnar köttum

Earthling - Radar

2005-03-01 15:01  _Mússíkin_

Ég niðurhalaði lag af Fluxblog um daginn sem ég var alveg að fíla en á sama tíma og ég var alveg að eipa yfir því hvað það var kúl þá fannst mér ég hafa heyrt það þúsund sinnum áður. Svo í dag fattaði ég að Eye of the Storm með Dalek minnir mig auðvitað á Earthlings sem gáfu út eina af uppáhaldsuppáhaldsplötunum mínum árið 1995. Platan heitir Radar og ég held þetta hafi verið fyrsta almennilega hipphoppdöbbmússíkin sem ég heyrði. Þetta er Bristol band og hefði átt að hafa allt til að bera til að heilla fólk sem keypti Tricky og Portishead en eitthvað varð til þess að þeir meikuðu það aldrei og enginn man eftir þeim samkvæmt google. Nema fólkið sem býr til lista á vefnum yfir vanmetna mússík. Hér má einmitt lesa viðtal sem einn svona gaur sem gerir lista yfir gleymdar hetjur linkar á.

Jón Karl kynnti mig fyrir Earthling eins og margri annarri góðri mússík og þessi plata var á rípít á rúntinum allan veturinn sem ég varð sautján ára. Þetta er platan sem varð til þess að ég horfði á Planet of the Apes myndirnar, kynnti mér Nat King Cole, Leonard Cohen, Boris Karloff og spáði í observasjónum á borð við Like Mr. Mclaren, someday I'll kill Sid...

Textarnir hans Mau eru geðveikir. Bréf eru skrifuð á hákarla sem reyna að bíta fingur viðtakandans af og fljúga svo yfir í tjörn nágrannans sem sést svo gefa bréfinu að éta daginn eftir, flugvélar fljúga um í stofunni og ungabörn eru vísindamenn í dulargerfi að smygla leynilegum upplýsingum. Tim Saul sem sér um mússíkina vann með Portishead að Dummy. Því meira sem ég hugsa um þetta því betur skil ég hvernig mér tókst að vera tiltölulega edrú unglingur. Þessí mússík veldur ofskynjunum strax á þriðja takti. Fljótari leið til að yfirgefa raunveruleikann er varla til ;)

Ég las það einhversstaðar um daginn að Earthlings hefðu á sínum tíma klárað aðra plötu sem heitir að sögn Human Dust. Ég gúgglaði þetta áðan og platan kom víst út á endanum í fyrra hjá franska útgefandanum French Discograph. Mig langar í hana.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!