UNNUR 2.0
Safnar köttum

Caoine

2005-03-01 16:32  _Netlestur_

Ég er búin að lesa vefsíðuna hennar Emmu í mörg ár. Emma er æðisleg. Við erum á svipuðum aldri, hún er með mastersgráðu í heimspeki, vinnur við forritun og er afskaplega skemmtilegur nörd. Hún elskar hátíðisdaga og linkar á skemmtilega hluti. Þegar ég byrjaði að lesa hana var hún lítil gothdjammstelpa, skrifaði um gothsenuna í New York og birti myndir af sér í svörtum fötum og leðri og litaði hárið á sér í nýjum pönkuðum lit mánaðarlega. Í dag er hún ung kona á framabraut og spilar Warcraft af miklum krafti. Af því að lesa Emmu lærði ég að lesa internetteiknimyndasögur (Hún vann með Penny Arcade liðinu þegar ég byrjaði að lesa hana), hafa áhuga á tölvuleikjum og að Hot Topic búðirnar væru bara fyrir gelgjur. Hún hefur líka bent mér á ótal athyglisverðar bækur, vefsíður og tónlist.

Emma veit ekki að ég er til. Ég hef aldrei vitað hvort eða hvernig ég ætti að segja hæ við hana.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!