UNNUR 2.0
Safnar köttum

Tryllingur og spilling

2005-04-04 17:09  _Viðburðurinn_

Brúðarbandið stóð fyrir kvöldskemmtun í Klink og Bank síðasta laugardag þar sem stelpurokk var í hávegum haft. Fram komu sex hljómsveitir sem stóðu svo til algerlega af kvenfólki: Lazy Housewifes, Brite Lights, Donna Mess, Viðurstyggð, Mammút og svo auðvitað Brúðarbandið. Tónleikarnir heppnuðust gasalega vel, góð stemmning og mjög vel mætt. Við fengum líka fína kynningu fyrir kvöldið í Kastljósi síðasta fimmtudag.

Ég er að vona að við getum gert þetta aftur einhverntíman. Því ekki veitir af því að reka áróður fyrir því að stelpur geri meira af því að stofna hljómsveitir og gera mússík. Þó ekki sé nema út af þeirri einföldu jöfnu að fleiri stelpur í mússík jafngilda meiri mússík sem jafngildir meira fjöri! :)


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!