UNNUR 2.0
Safnar köttum

The Life Aquatic

2005-04-07 11:56  _Bíóið_

Um daginn sá ég The Life Aquatic. Nú hef ég séð fullt af skrýtnum myndum og ég elska skrýtnar myndir, því skrýtnari því betri, en ég held að þessi fari alveg á toppinn hvað undarleika varðar. Nú megið þið ekki misskilja mig, ég fílaði þessa mynd í strimla. Og það er ekki eins og persónur og atburðarás myndarinnar hafi ekki fylgt fullkomlega eftir þeim bíómyndaraunveruleika sem myndin gerðist í. Ég held þvert á móti að það sem geri þessa mynd svo skrýtna er hversu afskaplega samkvæm hún er sjálfri sér í að vera skrýtin allan tímann. Því jafnvel tæknó framtíðarmyndir sem ættu að geta leyft sér algeran framandleika gleyma sér reglulega (ef ekki mest allan tímann sumar...) og fara að fylgja hefðbundum klisjum um persónusköpun og framvindu söguþráðar. Í The Life Aquatic vissi ég aldrei hvað myndi gerast næst. Hvernig persónurnar myndu bregðast við. Hvert leið þeirra myndi liggja næst.

Jonni var svo hissa á því að ég væri ekki hlæjandi allan tímann að hann spurði mig reglulega hvort ég væri ekki að skemmta mér. En ég get svarið það, það var svo mikið að gerast í hausnum á mér, þessi mynd var svo algerlega að hrífa mig, að ég þurfti að hafa mig alla við til að sjá út um augun á mér...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!