UNNUR 2.0
Safnar köttum

The Ring Two

2005-04-07 12:46  _Bíóið_

Ég var ógeðslega pirruð fyrstu 20 mínúturnar af The Ring Two. Ég var ekki að sjá hvað yrði skemmtilegt við að horfa á rúman klukkutíma í viðbót af söguhetjunum föstum í músagildru meðan Samara labbaði um draugaleg á svipinn og klóraði veggi.

Svo lagaðist handritið og myndin var hreint og beint mjög spennandi og frumleg. Samara er orðin ennþá öflugri draugur en hún var í fyrri myndinni og sækist eftir líkama af holdi og blóði auk móður til að elska sig. Fortíð Samöru og uppruni er útskýrður nánar og margt úr fyrri myndinni verður við það mun ljósara. Svo er þarna spúkí atriði með hreindýrum sem er svaakalega kúl.

Ég var sérstaklega ánægð með hvað það var farið sparlega með ógeðsletti atriðin og hversu mikið leikhæfileikar litla stráksins voru þess í stað notaðir til að magna upp spennu. Ég lenti samt á nokkrum stöðum í því að óska þess að ég myndi fléttuna úr fyrri myndinni betur. Svo fór það í taugarnar á mér í víðu skotunum hvað Naomi Watts er orðin nágrönn. Það gerir manni erfitt fyrir að meðtaka karaktera sem raunverulega þegar þeir eru leiknir af leikurum sem líkjast einna helst spýtukörlum. Meeen, hún var svo sæt og sexí í Mullholland Drive en ég fæ alveg klígju við að hugsa um hversu sorlega hún lítur út í dag, sér í lagi ef það er satt að myndavélin bæti á mann fimm kílóum...

Það er eitt sem mér finnst mjög athyglisvert við hryllingsmyndir. Karakterarnir í þeim virðast nefnilega varla hafa séð eina einustu hryllingsmynd yfir ævina. Sem er miður, fyrir þau, af því að mér hefur virst að ef maður myndi einn daginn vakna sem persóna í hryllingsmynd þá gæti grunnþekking á helstu horrortemunum og helstu framvinduklisjum bjargað lífi manns vel og vandlega. Fyrir utan það hvað það er í raun og veru ótrúlegt að karakterar í hryllingsmyndum stoppi aldrei og segji: Fokk, þetta sem við erum að lenda í er alveg sama dæmið og í þarna blockbusterhorrormyndinni sem ég sá um árið!. Ætli stéttarfélag horrorleikstjóra sé með klausu í meðlimasamningnum sem krefjist þess að hver hryllingsmynd látist hvað sína veruleikasköpun varðar vera sú fyrsta sinnar tegundar? Mig minnir nú reyndar að ég hafi einhverntíman séð hryllingsmynd þar sem var unnið með þessar pælingar, þ.e.a.s. þar sem karakterarnir notuðu bíómyndaþekkingu sína gegn óvættunum, en ég man ómögulega hvaða mynd það var.

Mig langar að sjá japönsku Ringumyndirnar. Ég hlakka líka til að sjá House of Wax.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!