The Motorcycle Diaries
2005-04-12 15:52 _Bíóið_

Fyrsta myndin sem ég sá á kvikmyndahátíðinni var Mótórhjóladagbækurnar.
Ég var ánægð með það að myndin snerist lítið um það að hefja Che upp á stall og meira um það að sýna ferðalag tveggja venjulegra en skemmtilegra stráka um Suður-Ameríku. Myndin var afskaplega hlý og indæl, sýndi fíflalæti þeirra krydduð mátulegum samfélagsboðskap og full af skemmtilegri mússík sem fékk mig á köflum til að langa til að dilla mér í sætinu þannig að ég fór út brosandi og kát.
Það spillti heldur ekki fyrir að við vorum boðin á frumsýninguna og eftir á var rauðvín og kokteilmússík. Svo veit ég ekki alveg hvaða tilgangi það átti að þjóna en meðal kokteilgesta var kona klædd upp eins og fimmþúsundkona og ég sá ekki betur en að hún væri að mingla og tala við fólk. Kannski var einhver bankanna að vona að fólk yrði móttækilegra fyrir tillögum um viðbótarsparnað eða kannski var hún að bjóða lífeyrissjóðslán, ég veit ekki. Ég held ég hafi allaveganna flissað einum of mikið í hvert skipti sem hún nálgaðist til að hún þyrði neitt að tala við okkur....