UNNUR 2.0
Safnar köttum

Hola í hjarta mínu

2005-04-12 16:06  _Bíóið_

Mynd númer 2 á kvikmyndahátíð er sú allra leiðinlegasta þvæla sem ég hef nokkurntíman séð. Hún fjallaði um leiðinlegt fólk sem hékk saman í leiðinlegri íbúð og gerði leiðinlega hluti og fannst hinn stóri heimur utan íbúðarinnar leiðinlegur. Ég sé einna helst fyrir mér að Moddyson hafi fengið góða hugmynd en ekki nennt að vinna úr henni þannig að hann sagði við sjálfan sig: tjáh.... gerum hana bara soldið sjokkerandi og þá heldur fólk áfram að borga undir mig á kvikmyndahátíðir og kampavínsfyllerí næsta árið! Vissulega var þarna ákveðin samfélagsgagnrýni á ferð en hún risti ekki sérlega djúpt né var hún matreidd á þann máta að hún fengi mann til að hugleiða hlutina neitt sérstaklega. Nema kannski myndin hafi verið ádeila á leikstjóra sem gera hrútleiðinlegar myndir/sjónvarpsefni með áherslu á sjokkvaljú í nafni samfélagsgagnrýni vitandi að enginn mun þora að segja að keisarinn sé nakinn.

Issues of morality, reality TV and friendship are explored... segir IMDB. Leti, metnaðarleysi og hugmyndaskortur eru viðfangsefni þessarar myndar, segir Unnur frænka.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!