The Mayor of Sunset Strip
2005-04-12 16:30 _Bíóið_

Myndin er full af gömlum kvikmyndabútum af skrautlegum stjörnum og fáklæddu fallegu kvenfólki, auk nýlegra viðtala við Rodney Bingerheimer og fjölskylduna hans sem finnst hann greinilega skrýtinn og kann lítt að meta hann. Ólíkt sumum viðföngum heimildarmynda þá er Rodney ekki mikið fyrir það að opinbera persónulega harma og ótta fyrir kameruna. Fyrir vikið verður maður tífalt forvitnari og mörgum klukkutímum eftir að ég kom út úr bíóinu var ég ennþá að hugsa um hin ýmsu atriði myndarinnar og saman enduðum við Jonni á netinu að skoða hvað Google segði okkur um Rodney og annað fólk sem kom fram í myndinni. Hann virðist hafa átt mjög undarlegt en viðburðaríkt líf, foreldrar hans skildu þegar hann var smápolli og hann ólst upp hjá móðurinni sem var skapmikil og skrýtin og safnaði eiginhandaráritunum fræga fólksins af mikilli ákefð. Þegar hann var unglingur virðist hún svo hafa orðið leið á móðurhlutverkinu og sagði honum að hann gæti séð um sig sjálfur. Pabbi hans tók saman við aðra konu og til samans eru þau hjónin smáborgarar dauðans. Það að hlusta á þau tala um Rodney eða mömmu hans er afskaplega bitur skemmtun, ég kímdi yfir því að þau væru heimsk fífl en á sama tíma fannst mér sorglegt að þetta væru nánustu ættingjar hins skrýtna en hjartahlýja Rodneys.
Fimm stjörnu mynd... Hiklaust! :)