UNNUR 2.0
Safnar köttum

Maria, llena eres de gracia

2005-05-05 00:40  _Bíóið_

María full náðar var fjórða kvikmyndahátíðarmyndin okkar Jonna. Ég fílaði hana mjög vel. Sagan er einföld en mjög vel gerð, mjög vel leikin og átakanleg.

Það kom pínulítið flatt upp á mig hvernig flestir dómar um þessa mynd lýstu henni sem svo að hún sýndi hversu ömurlegt líf lágstéttanna í Kólumbíu er og hversu langt fólk er tilbúið til að ganga til að flýja fátækt og örbirgð. Mér fannst myndin vissulega sýna að kjör þessa fólks eru hörð og samfélagið býður ekki upp á að fólk eigi sér drauma. Engu að síður þá átti fjölskylda Maríu nóg að borða og þak yfir höfuðið. Og ég sá ekki betur en að unglingarnir þarna skemmtu sér eins og aðrir unglingar. Auðvitað höfðu María og vinkonur hennar ekki efni á fínum tískufatnaði, vinnan hennar var leiðinleg og fjölskyldan bjó þröngt en ég sá ekki alveg þessa örvæntingu sem gagnrýnendur lýsa. Mér fannst María ekki taka þessa áhættu vegna þess að hún neyddist til þess heldur miklu frekar til að elta drauma um ríkidæmi og aukin lífsgæði. Til að elta draum sem kvikmyndir og fjölmiðlar hafa skapað. Sem er engu minna umhugsunarvert en bág kjör Maríu.

Í myndinni er atriði sem sýnir Maríu æfa sig fyrir heróinpokaátið með því að gleypa vínber í heilu lagi. Daginn eftir prófaði ég það og var næstum því búin að drepa mig á því...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!