UNNUR 2.0
Safnar köttum

Hús hinna fljúgandi rýtinga

2005-05-05 01:27  _Bíóið_

Kvikmyndahátíðarmynd númer 5 var Hús hinna fljúgandi rýtinga. Á sama tíma og mér fannst hún mjög æði, algert konfekt sjónrænt séð þá var ég, þegar ég labbaði út úr bíóinu, alveg drullufúl yfir því hvað hún endaði sorglega. Ég var í væmnu skapi þetta kvöld og hefði alveg kosið einhvern ævintýraendi þar sem í lokin hefði komið í ljós að stúlkan var í raun og veru ekki látin og hún og maðurinn sem elskaði hana í raun og veru (en vildi ekki bara eiga hana) hefðu riðið í faðmlögum inn í sólarlagið.

Í staðinn keyrði ég bara með manninum sem elskar mig, ekki inn í sólarlagið þar sem klukkan var orðin svo margt, en heim til kattanna okkar þar sem við kysstumst og föðmuðumst og hann lofaði að næst þegar við horfðum á ástarmynd mætti hún enda vel...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!