UNNUR 2.0
Safnar köttum

Über Goober

2005-05-05 01:42  _Bíóið_

Kvikmyndahátíðarmynd númer fimm var heimildarmyndin Über Goober. Ég er ekki viss um að óinnvígðir hafi alveg náð myndinni en mér fannst hún massafyndin. Ég nefnilega spilaði ADD þegar ég bjó á Skaganum (Og smá Vampire) og mér fannst það æðislegt. Fór meiraðsegja á stórt Fáfnismót þar sem ég upplifði það að vera hin stelpan á vel rúmlega hundrað manna samkomu. Þar spilaði ég í næstum því sólarhring samfleytt og sá fullvaxinn karlmann skrækja af hræðslu og hoppa upp í fangið á stráknum við hliðina á sér þegar stjórnandinn í síðasta spilinu sem ég spilaði (sem var horror spil) stökk að honum og andaði á hálsinn á honum í tilefni þess að teningarnir ákváðu að skrýmslin réðust á téðan fullvaxna karlmann.

Þegar ljósin kviknuðu í salnum sá ég hluta af gamla rólpleying hópnum mínum af Skaganum ganga flissandi út...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!