Naoleon Dynamite
2005-05-05 01:59 _Bíóið_

Það er samt ekkert svo mikið hægt að segja um hana og hún er í raun og veru ekki eftirminnileg. Bara voða vel heppnuð, vel leikin og full af aulaaulahúmor sem minnti mann bæði á Pretty in Pink og , Gummo með keim af Todd Solondz
Sagði ég ykkur að í Nashville fór ég í partí þar sem ég hitti Kanínustrákinn úr Gummo. Ég var drukkin og fannst þetta afskaplega fyndið og sagði honum frá því að ég hefði í mörg ár verið með mynd af honum í kanínubúningnum sitjandi á klósetti, hangandi á klósetthurðinni minni. Ég þá mynd ekki lengur (hún skemmdist að endingu) en núna á ég mynd einhversstaðar tekna í síma af okkur tveim þar sem við skælbrosum glaseygð kinn við kinn í linsuna. Einhver í partíinu sagði mér að hann væri svosem ekkert svo ólíkur þeirri persónu sem hann lék í myndinni. Ég held þetta sé sú fræga persóna sem mér hefur þótt merkilegast að hitta. Ég held líka að það væri hægt að skrifa áhugaverða bullsjitt grein um það hvernig lágupplausnamyndir úr myndavélasímum eru hið nýja form eiginhandaráritana... ;)