Nine songs
2005-05-05 14:43 _Bíóið_

Hvað myndina sjálfa varðar fannst mér hún ágæt. Mér fannst hún lýsa því ágætlega hvernig fólk getur verið afskaplega líkamlega náið án þess að vera það í raun og veru andlega. Það var ýmislegt í fari þeirra beggja sem mér fannst sýna að hvorugt þeirra náði að taka niður grímuna sem maður ber á almannafæri og hvorugt þeirra hafði nokkurntíman kjark til að ræða hluti sem þau voru greinilega ósammála um og ollu angri og sárindum. Sem er einmitt afskaplega mannlegt og sannfærandi þegar verið er að sýna svo ungt og í raun hikandi samband. Ég er alls ekki viss um að þau hafi verið búin að kynnast neitt af ráði þegar leiðir skildu og ég átti auðvelt með að ímynda mér að söknuður Hans eftir Henni væri að miklu leyti söknuðurinn eftir öllu því sem hann kynntist aldrei. Þetta væri eflaust ágæt mynd fyrir hjónabandskynlífsráðgjafa til að nota til að fá fólk til að tala saman undir því yfirskyni að það væri að ræða myndina, svo víðtækt svið misskilninga og samskiptavandamála var tekið fyrir í Nine Songs.
Tónleikaatriðin voru skemmtileg og lýsingin í gegnum alla myndina var afskaplega flott. Mér fannst líka góð pæling að Hann væri að rifja þetta samband upp í ferð á Suðurskautslandið, það að stilla saman nekt, dimmum hita og líkamlegri nánd á móti snjófjúki og miskunnarlausri kaldri birtu var mjög töff. Mér allvega fannst Hann jafn einmana á báðum stöðum.