UNNUR 2.0
Safnar köttum

Oh! Wicked Wanda!

2005-05-05 15:42  _Netlestur_

Ég uppgötvaði Oh!Wicked Wanda í veikindunum í gær og er búin að vera flissandi yfir þeim síðan. Þetta eru blautlegar sækadelískar teiknimyndasögur úr Penthouse sem hófu gang sinn árið 1973 og enduðu áttatíuogeitthvað. Sögurnar segja frá hinni kynóðu og forríku ungfrú Wöndu Von Kreeesus og sædkikkinu hennar ungfrú Candyfloss. Þær búa á ættaróðali Wöndu í Sviss og hafa ofan af fyrir sér með því að hrekkja karlrembur og fúlt fólk sem er á móti frjálsum ástum auk þess sem þær þurfa svo reglulega að takast á við óvini sem vilja klekkja á þeim. Til þess hafa þær vaska hersveit PIF (Puss International Force) og Homer Sapiens, brjálaðan vísindamann sem finnur allskonar sniðug tæki og tól.

Þetta eru mjög óforskammaðar og kjánalegar teiknimynda sögur í stíl við Barbarellu án þess að aðalsöguhetjan sé þó jafn naív, sem draga sundur og saman í háði marga helstu pólítíkusa og menningarfrömuði sinna tíma. Í fyrstu sögunni sjáum við einmittt Íslendinginn Bobby Fischer hljóta makleg málagjöld fyrir fégræðgi sína og sérvisku í senu þar sem gert er stólpagrín að skákmótinu í Reykjavík forðum daga. Höfundar teiknimyndasögunnar eru þó ekki bara að hugsa um að skemmta því að í sögunum, sérstaklega eftir því sem lengra dregur má greina hvassa gagnrýni á utanríkisstefnu Bandaríkjanna og græði stjórnvalda. Það er svo mjög undarlegt að sjá, miðað við hvar sagan birtist, hvernig femínísk sjónarmið og pælingar um stöðu konunnar eru uppivaðandi sögurnar út í gegn.

Maður þarf auðvitað að vera soldið inn í sögu þessara tíma til að ná öllum bröndurunum (sem ég er örugglega ekki að gera). En það er líka fullt af aulahúmor og slapstick þarna til að vega upp á móti samtímatengda efninu. Plús foxí kvenf ólk auðvitað... ;)

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site



  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!