UNNUR 2.0
Safnar köttum

Darkness

2005-05-05 17:09  _Bíóið_

Darkness er áhugaverð hryllingsmynd. Hún er gerð 2002 og og var svo svo gott sem stungið oní skúffu. Hún kom hingað í fyrsta skipti á nýju kvikmyndahátiðinni og í Bandaríkjunum var hún klippt svo rosalega til af spjallþráðunum á IMDB að dæma að það virðist ekki nokkur maður hafa skilið hana. Hér er samt á ferðinni ein besta hryllingsmynd sem ég hef séð. Sem vogar sér að láta reyna á túlkunarhæfileika áhorfenda og endar þar að auki á því að allir eru étnir af skrýmslunum. Það tók mig tvo daga að hugsa um næstsíðasta atriðið í myndinni og þegar ég áttaði mig á því hvað gerðist í raun og veru þurfti ég að segja kúúúúl! upphátt. Í þessari mynd er nefnilega ekkert eins og það virðist. Sem kom ekki fyrir að ég væri logandi hrædd í bíóinu og íhugaði sterklega að fara bara út í sólskinið fyrir utan Regnbogann...

Þær spönsku hryllingsspúkmyndir sem ég hef séð hafa allar verið frábærar. Ég sá t.d. mynd á kvikmyndahátíð í Montpellier fyrir nokkrum árum sem bar nafnið Thesis. Hún fjallaði um háskólastúdínu sem er að vinna verkefni um ofbeldi og upp í hendur hennar berst snuffmynd. Og eins og gerist í bíómyndum þá fer hún auðvitað að rannsaka þetta og lendir í mikilli lífshættu. Þessi mynd var alveg frábær og mjög mjög spennandi. Þetta var fyrsta mynd leikstjórans Alejandro Amenábar sem svo seinna gerði Abre los ojos og brilleraði með The Others með Nicole Kidman.

Það var samt eitt sem truflaði mig við myndina. Plottið snýst um barnafórnir og occultisma og eitt atriðið snýst um það að söguhetjurnar fletta ofan af sannleikanum með því að finna gamla bók á bókasafni. (Ok, það var tvennt sem truflaði mig og hitt smáatriðið er líka í þessu atriði, nefnilega það að á meðan að bókavörðurinn réttir söguhetjunum þessa eldgömlu bók með bómullarhönskum þá eru söguhetjurnar ekki skyldar til þess að setja upp slíka hanska og þær hafa ekki verið skyldaðar til þess að setja skólatöskuna sína inn í læstan skáp áður en þær fóru inn í herbergið þar sem viðkvæmu gömlu bækurnar eru geymdar... Hvernig á maður að trúa því að þetta sé alvöru handritadeild?!?) Nefnilega að í bókinni er barnafórnargaldurinn myndskreyttur og fyrir ofan hin sjö hálsskornu börn gnæfir einmitt musteri salómons. Sem þýðir að hvort sem það er viljandi eða óviljandi þá er myndin allt í einu farin að snúast um hina aldagömlu mýtu um að gyðingar steli börnum og skeri þau einmitt á háls við trúarathafnir. Sem er ótrúlegt en satt mýta sem er ennþá ennþá við lýði, sjá t.d. hér og hér.

Mér fannst frekar magnað að svona dót skyldi detta inn í bíómynd og ég myndi gjarnan vilja vita hvort þetta var viljandi eða ekki, að velja mynd sem er svona afskaplega hlaðin merkingu sem props í þessu atriði.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!