Death Race 2000
2005-05-07 14:21 _Bíóið_

Myndin gerist í Bandaríkjunum einhverntíman í óræðri framtíð. Ég fékk það á tilfinningunni að Bandaríkin hefðu unnið heimsstyrjöld (mögulega þá seinni) og á fót hefði verið komið einhverskonar fasistaveldi. Til að hafa múginn þægan er svo boðið upp á leika og brauð, s.s. Death Race 2000 þar sem markmiðið er ekki einungis að vera fyrstur á leiðarenda heldur fá þáttakendur stig fyrir það að keyra yfir saklausa vegfarendur. Ungabörn skora hátt en gamalmenni gefa einnig slatta af stigum.
Plottið í myndinni snýst svo eins og í öllum góðum myndum um baráttu góðs og ills, til staðar en auðvitað andspyrnuhreyfing sem vill að Bandaríkin verði aftur samfélag sem beri virðingu fyrir mannslífinu og mannlegri reisn. Til þess er foxí kvenhetja send í önderkovermissjón til að ná á sitt vald foxí karlillmenninu. Hliðarsöguþráðurinn segir okkur svo frá innri baráttu innan andspyrnuhreyfingarinnar en meðlimir hennar eru ekki sammála um það hversu langt skal ganga í því að berjast fyrir sannfæringunni. En að sjálfsögðu er svo ekki allt sem sýnist.
Þetta er ein frábærasta mynd sem ég hef séð og ég gapti af undrun allan tímann sem hún rúllaði. Heimur þar sem maður hefur enn ekki séð allar uppáhaldsbíómyndirnar sínar er góður heimur :)