Rock ´n Roll Highschool
2005-05-07 15:01 _Bíóið_

Ég las ævisögu Dee Dee í fyrra, Poison Heart og þar er fjallað soldið um gerð þessarar myndar. Mig minnir að hann muni ekkert eftir því að hafa leikið í þessari mynd, svo dópaðir voru þeir allir á meðan að á tökum stóð. Í gærkvöldi sýndist mér það alveg geta staðist, sérstaklega hvað varðar Dee Dee. Línunum hans var enda fækkað úr 5 í 2 (Hey, pizza! og Hey, pizza! It's great! Let's dig in!.) Dee Dee var á meðan á tökum stóð handtekin fyrir slagsmál og lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa óverdósað. Reikningurinn fyrir sjúkrahúsvistinni nam víst rúmlega helmingi þeirrar fjárhæðar sem þeir fengu fyrir að leika í myndinni...
Ramones voru æðislegir sem unglingaidol, þeir eru nefnilega svo afskaplega óaðlaðandi í þessari mynd. Fullkomlega óaðlaðandi. Ég hefði gjarnan viljað vera fluga á vegg við tökur þessarar myndar.