UNNUR 2.0
Safnar köttum

Nían

2005-05-12 19:33  _Viðburðurinn_

Ég ætlaði alltaf að minnast á það að mér tókst á endanum að komast á Níuna. Og ég hef sjaldan orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum með nokkra sýningu. Það var fullt af kúl dóti þarna. Hinsvegar skorti sárlega á allar upplýsingar sem hefðu getað dýpkað skilning manns á því sem maður sá. Og þá er ég nú bara að tala um beisik upplýsingar eins og t.d. hvað íslenska hlutann varðar þá hefði verið gaman að sjá uppá vegg einhvern smá texta um íslenska myndasöguhefð. Kynning á listamönnunum var þar að auki af afskaplega skornum skammti (Léleg jafnvel þar sem hún þó var til staðar) og persónulega fannst mér ekki samhengið innan sýningarsalanna neitt sérstaklega augljóst.

Ég veit hinsvegar að það vantar ekki fólk hér í bæ sem veit skemmtilega og fróðlega hluti um teiknimyndasögur, sem hefði getað skrifað góða og stutta texta um verkin sem þarna voru til sýnis. Þessvegna er ég skúffuð yfir þessu. Á svona sýningu vil ég ekkert fjandans tækifæri til að vega og meta í núinu það sem ég sé fyrir framan mig! Ég vil láta segja mér hver eru aðalviðfangsefni þessa listamanns, hvaða stefnum hann fylgi og hvað það þýði á mannamáli, hvenær fyrirbærið graphic novel varð til og hvernig því hafi verið tekið, hvort það sé til einhver íslensk teiknimyndasöguhefð, hvort það sé eitthvað sérstakt sem einkenni skandínavískar teiknimyndasögur...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!