Útskriftarsýning Listaháskólans
2005-05-12 19:51 _Viðburðurinn_
Annars fannst mér margt flott á sýningunni. Unnur Andrea er að útskrifast og sýnir vídeóverk sem vekja með manni viðbrögð. Eitt þeirra fannst mér ógjéð en annað mjög fallegt. Donna Mess á þarna vídeó og innsetningu sem er skemmtileg. Myndlistardótið þar sem konan er að hlaupa á vegg fannst mér flott og endurunnu fötin sem sögðu sögu sína fannst mér líka áhugaverð pæling. Vídeóið með diktafóninum sem springur er líka á topp tíu listanum mínum auk æðagúlpsheilaskönnunarbolanna og ljósakrónanna úr sykri.
Eins og ég vældi yfir varðandi Níuna þá hefði ég viljað fá eitthvað info um hvaða pælingar hefðu legið að baki verkunum. Ekki vegna þess, ólíkt Níunni, að ég hafi ekki getað notið þessarra verka á eigin forsendum heldur vegna þess að ég var mjög forvitin um það hvað margir listamannanna voru að pæla. Sumir reyndar útskýrðu það, sem er vel. Það er víst leiðsögn (nemenda) um safnið á sunnudögum klukkan 15 og það má vel vera að ég hoppi yfir einhvern sunnudaginn fyrir 29unda maí og láti útskýra eitthvað af þessu flotta dóti fyrir mér :)