Detox
2005-05-16 18:28 _Bíóið_

Stallone leikur þarna FBI agent sem lendir í því að subbufjöldamorðinginn sem hann er að eltast við drepur konuna hans. Hann leitar huggunar á barnum og að endingu dregur vinur hans hann í meðferð á stað sem er rekinn af fyrrverandi lögreglumanni og sérhæfir sig í því að endurhæfa traumatíseraða og efnaháða laganna verði. Endurhæfingarheimilið er auðvitað úti í rassgati, upp á einhverju fjalli og innan skammst skellur á snjóstormur, öll samskipti við umheiminn verða ómöguleg og úúú... einhver vistmannanna á meðferðarheimilinu er geðveikur morðingi. Mikil paranoja grípur um sig og viðstödd skiptast á að ásaka hvert annað meðan að blóðug lík hrannast upp í kæliklefa kokksins.
Handritið er byggt á góðri hugmynd en það var bara eitthvað sem var ekki að virka, eitthvað sem gerði myndina afskaplega flata. Þar að auki er langt síðan ég hef átt í jafn miklum erfiðleikum með að halda utan um það hvaða karakter er hver, ég ruglaði vistmönnunum endalaust saman þannig að ekki getur persónusköpunin talist hafa verið uppá marga fiska. Alltaf gaman að Stallone samt. Hann er mikið karlmenni og ég er, spennt að horfa á Nighthawks, hún á víst að vera gæðamynd.