UNNUR 2.0
Safnar köttum

Elvira: Mistress of the Dark

2005-05-16 18:46  _Bíóið_

Við Jonni fundum ódýrar dvd myndir í Kolaportinu í fyrradag. Meðal þess sem við grófum upp var meistaraverkið Elvira: Mistress of the Dark. Myndin segir frá hinni undarlegu Elviru sem er stjarna sjónvarpsþáttar hvers þema eru gamlar hryllingsmyndir. Hún fær þær fréttir að frænka hennar (sem hún vissi ekki einu sinni að hún ætti) sé nýlátin og hún eigi von á arfi. Hún sér í þessum fréttum möguleika á því að geta fjármagnað sýningu sína í Las Vegas og hoppar því upp í bílinn og keyrir af stað. Þegar í smábæ frænkunnar er komið kemst hún að því að arfurinn felst í gömlu ónýtu húsi og því sem henni finnst vera harla ómerkileg matreiðslubók. Auk þess eru íbúar smábæjarins afar siðsamt fólk sem tekur henni síður en svo vel. Kaldar kveðjur bæjarbúa duga þó ekki til að hrekja Elviru burt, sem reynir hvað hún getur að selja húsið en endar á því að uppgötva galdramátt sinn og ýmis skuggaleg fjölskylduleyndarmál rétt áður en hún er ákærð fyrir galdra og hent á bálið. Hún nýtur þó dyggrar aðstoðar pönkarapúðlugaldrahundsins, saklausa og vöðvastælta bíóeigandans og unglinganna í bænum sem taka þeim fersku vindum sem Elvira veitir inn í smábæinn fagnandi hendi.

Ég hef aldrei séð Elviru þættina eða neitt, kannaðist bara við karakterinn af því að hafa rekist á heimasíðuna hennar en meeen hvað þetta var sillý mynd. Ákaflega skemmtileg og full af aulahúmor :)

Cassandra Peterson, alteregó Elviru, er fyrir margt athyglisverð kona. Hún kom fram í Róm Fellinis, var yngsta danspían í sögu Las Vegas, túraði Evrópu með ítalskri rokkhljómsveit og skrifar í dag sögur um litla sæta hunda.

Ég mæli með pistlum Elviru þar sem hún gefur ráð um klæðaburð og snyrtingu. Why be a fashion victim when you can commit fashion homicide?Og að sjálfsögðu er pistill um það hvernig skuli lifa horrormyndaaðstæður af algert möst!


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!