Skyndikynni
2005-05-16 23:45 _Viðburðurinn_

Síðast fimmtudag var ég viðstödd opnun þaksýningar í húsnæði Reykjavíkur Akademíunnar. Sýningin er flokkuð sem jaðarviðburður Listahátíðarinnar, hvað sem það nú þýðir. Það var allskonar dót í gangi þarna, gjörningar og fleira sem var gaman að fylgjast með þótt ég væri hvað sumt varðaði bara eitt stórt skilningssljótt spurningarmerki. Stemmningin var þó fín og spes að vera viðstödd svona viðburð á svona stað. Skemmtilegast af öllu var samt að sjá nýja fína Brúðarbandsvídeóið frumsýnt en það eru þær Kristín Elva Rögnvaldsdóttir og Marta María Jónsdóttir sem eiga heiðurinn af því. Þetta er anímerað vídeó við Brúðarbandsmöntruna og sýnir það okkur Brúðarbandsmeyjarnar sem rokkskutlumýs. Ég hlakka mikið til þegar þetta vídeó kemst í spilun á sjónvarpsstöðvunum! :)