UNNUR 2.0
Safnar köttum

Sky Kaptain and the World of Tomorrow

2005-05-25 15:58  _Bíóið_

Það tók mig tvær tilraunir að horfa á Sky Kaptain and the World of Tomorrow. Mér fannst hún alls ekki skemmtileg og þó hef ég mikið þol fyrir Bmyndum. Hún var samt ágætlega leikin og það að flest annað en leikararnir væri tölvuteiknað var ekkert að trufla mig. Málið var bara að á meðan að hugmyndin að plottinu var vel frambærileg þá var handritið ferlega illa útfært. Ég var eiginlega aldrei neitt spennt, hvað þá forvitin um það hvað myndi gerast næst. Öll framvinda slúmpaðist bara einhvernvegin áfram án þess að grípa mig hið minnsta. Ég held að eina ástæðan fyrir því að ég entist til að horfa á myndina hafi verið hvað hún var sjónrænt flott. Því það er hún vissulega.

Hér má finna athyglisverða umræðu um það hvernig fagurfræðileg framtíðarsýn bandaríkjamanna í lok fjórða áratugarins er höfð að leiðarljósi við hönnun borgarmynda og bygginga í Skykaptain and the World of Tomorrow. Af aukaefninu sem fylgdi með DVD disknum, plús heimasíðu myndarinnar að dæma virðast heilmiklar pælingar hafa farið í útfærslu bæði karakteranna og þess heims sem þau byggja. Það er mikill skaði að framleiðandi myndarinnar hafi ekki slysast til að ráðið almennilegan handritshöfund...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!