Rambó 7
2005-05-26 02:07 _Viðburðurinn_

Leikritið er eiginlega týpískt stofudrama. Johnny vaknar á sunnudagsmorgni við símtal frá Utanríkisráðuneytinu og er tilkynnt að bróðir hans, Júlli Sækó, sé týndur í Bosníu. Skömmu síður veltur fáklædd stúlka, Stjarna, út úr svefnherbergi föður hans. Seinna um daginn kemur svo burðardýrið Pési í heimsókn. 3 persónur eru þannig fastar saman í íbúð yfir einn dag og sú fjórða er viðstödd í höfði aðalpersónunnar. Þau ræða um drauma og vonir, sýna á sér góðar hliðar en þó aðallega slæmar, neyta eiturlyfja og bregðast hvort við öðru. Það var margt við þetta leikrit sem fékk mig til að hugsa: jahá! þetta er svona eins og athyglisverð útgáfa af Hola í hjarta mínu dæminu.
Mér fannst leikritið vel skrifað, skemmtilegt jafnframt því að vera áleitið og afskaplega vel leikið. Tónlistin er skemmtileg og möguleikar vídeótækninnar eru notaðir á þann hátt að sýningin öðlast mjög skemmtilega vídd sem undirstrikar líkindi sem eru til staðar með raunveruleikasjónvarpi og efni verksins. Það er mikið lagt upp úr interaksjón leikara og áhorfenda og hér fannst mér sá hluti sýningarinnar vera vel heppnaður. Stundum þegar leikararnir voru að hlaupa um áhorfendabekkina og nálguðust gifshlussufótinn minn fékk ég samt smá hland fyrir hjartað...
Leikskráin sem við keyptum er í formi dvd disks. Hann inniheldur leiknar senur sem virka á mann eins og þær séu teknar af heimilisvídeókamerunni heima hjá Johnny og Júlla Sækó. Mjög skemmtilegt og mjög töff.
Aðalleikararnir komu eftir sýninguna og þökkuðu mér fyrir að hafa komið. Þau voru líklega búin að vera að passa sig að detta ekki á hlussufótinn minn allan tímann. Svo hjálpaði leikstjórinn með upp stigann. Mjög sæt og viðkunnanleg leikhúsupplifun!