House of Wax
2005-06-03 00:04 _Bíóið_

Fótbrotningurinn ég fór í bíó um daginn að sjá House of Wax. Ég var búin að hlakka soldið til að sjá hana og varð ekki fyrir vonbrigðum. Þetta er dæmigerð úllingahrollvekja en mjög vel gerð, vel skrifuð og prýðilega leikin. Það voru kaflar í henni sem minntu mig á House of 1000 Corpses sem er ein besta mynd í heimi enda ganga báðar myndirnar út á svipaða hluti. Hér fara nokkrir krakkar fara í roadtrip og enda í fríkí smábæ þar sem geðveikur morðingi tekur til við að stúta þeim og vaxhúða til að skapa sýnisgripi fyrir vaxmyndasafnið sitt. Það kom mér á óvart að Paris Hilton var mjög fín, ég hafði svona frekar átt von á því að hún væri þarna til að skapa umtal fyrir myndina og svona en vegna þess að hún ætti eitthvað að leika.
Myndin er víst endurgerð af samnefndri mynd frá árinu. Sú var þrívíddarmynd með Vincent Price í aðalhlutverki. Ég væri mjög svo til í að sjá hana! :)