UNNUR 2.0
Safnar köttum

Borgaralegt hugrekki

2005-06-08 23:48  _Viðburðurinn_

Í fyrrakvöld fórum við Jonni á námskeið í borgaralegu hugrekki. Námskeiðið er haldið af tveim breskum aktívistum og gekk út á það að ræða svokallaðar beinar aðgerðir (direct action) og það sem annað hvort kemur í veg fyrir að fólk taki þátt í slíkum aðgerðum eða dregur úr þáttöku. Námskeiðið var athyglisvert sem slíkt, það byggðist á samræðu leiðbeinanda og þáttakenda frekar en eintali kennara. Slíkt finnst mér alltaf skemmtilegt. Þar að auki fékk það sem var talað um mig til að hugsa um fullt af dóti sem ég hef ekki hugleitt lengi. Ég er alveg spennt að eyða nokkrum klukkutímum í viðbót í að hugsa um mótmæli og hver einstaklingurinn er megnugur gagnvart bæði ríkis- og auðvaldi næsta laugardag.

Það var greinilegt að hvorugt leiðbeinandanna er neitt sérstaklega vant því að halda svona námskeið. En það kom lítið að sök, eiginlega var það bara góð tilbreyting að svona umræðum væri ekki stjórnað að fólki sem elskar að heyra sjálft sig tala.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!