UNNUR 2.0
Safnar köttum

Voyage to the Planet of Prehistoric Women

2005-06-09 00:54  _Bíóiđ_

Áriđ 1962 gerđu rússar vísindatryllinn Planeta Bur sem segir frá ferđ ţriggja geimfara til spúkí plánetu. Sú mynd var seinna klippt til og döbbuđ fyrir ameríkumarkađ og ađ auki bćtt í hana atriđum međ leikurunum Basil Rathbone og Faith Domergue. Ţessi útgáfa fór í amerísk bíó áriđ 1965 sem Voyage to the Prehistoric Planet. Enn var ţó hćgt ađ kreista djús úr rússnessku myndinni og 3 árum seinna tók leikstjórinn Peter Bogdanovich sig til, klippti brćđinginn til, henti Rathbone og Domergue út og bćtti í stađinn inn Venusarmeyjum, ljóshćrđum og íturvöxnum, íklćddum litlum bíkíníum gerđum úr hörpuskeljum. Íturvaxnasta og ljóshćrđasta Venusarmeyjan var leikin af Mamie Van Doren. Til viđbótar henti hann inn nokkrum tćknilega flottum skotum úr annarri sovéskri mynd, Nebo zovyot. Samsuđa Bogdanovich var svo sett í bíó sem Voyage to the Planet of Prehistoric Women. Hann var ţó eitthvađ efins um ágćti myndarinnar og notađi ţví dulnefniđ Derek Thomas.

Árangurinn er ein skrýtnasta mynd sem ég hef séđ. Hún er svo afskaplega vond ađ ţađ er hin prýđilegasta skemmtun ađ horfa á hana. Ég ađ minnsta kosti skemmti mér konunglega. Ţađ er skrýtiđ ađ hugsa sér ađ bíógestir, ađeins áriđ áđur en beinar sjónvarpsútsendingar hófust frá tunglinu, hafi gúdderađ svona krappí brellur og leikmyndir. Hún minnir sökum ţessa á köflum á barnamynd gerđa fyrir lítinn peninga. Titillinn sömuleiđis fćr hausinn á mér alveg til ađ snúast, afhverju áttu konurnar endilega ađ vera forsögulegar? Mjög svo nýlenduherraleg heimssýn svo ekki sé meira sagt...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!