UNNUR 2.0
Safnar köttum

Mamie Van Doren

2005-06-09 11:44  _Netlestur_

Eftir að hafa horft á hina undarlegu mynd Voyage to the planet of Prehistoric Women þá velti ég því fyrir mér hver þessi ýturvaxna leikona, sem ber hið últra b-myndalega nafn Mamie Van Doren, hefði verið. Ég googlaði hana af rælni en bjóst svo sem ekki við neinu öðru en að nafnið væri það athyglisverðasta við hana. Sannleikurinn hinsvegar fékk mig til að gapa af undrun og komast að þeirri niðurstöðu að líklega er þetta frábæra sviðsnafn það eina sem er dæmigert við þessa konu.

Hin fína fína síða Cult Sirens segir að Mamie hafi fæðst árið 1933 í Dakota, Bandaríkjunum en fluttst ung til Hollywood með foreldrum sínum. Hún vill verða stjarna og meiktilraunirnar takast ágætlega. Árið 1953, eftir að hafa reynt við nokkur kvikmyndaver, kemst hún á samning hjá Universial. Næstu árin leikur hún svo sexí ljóskur en uppúr 1960 eru amerískar ljóskur dottnar út tísku í Hollívúdd þannig að hún endar í b-myndunum. Síðusta myndin sem hún gerði fyrir stórt kvikmyndaver var Teacher's Pet en þar söng hún slagarann The girl who invented Rock 'n' Roll. Hún lék á sjöunda áratugnum í fjölda athyglisverðra b-mynda, t.d. Sex kittens go to College og The Private lives of Adam and Eve. Hún hefur síðan verið á stanslausu djammi í L.A. og fékk stjörnu á Hollywood Boulevard 1984.

Mamie heldur í dag úti athyglisverðri heimasíðu. Hún bloggar mjög skemmtilega um það hvað Bush sé mikill fáviti en hvuttarnir hennar litlu sætir, hún segir klámfengnar sögur af samskiptum sínum við annað frægt fólk, birtir myndir af sér að gellast og rifjar upp ferilinn í máli og myndum. Það er erfitt að muna eftir því þegar maður les síðuna að manneskjan bak við textann sé rúmlega sjötug og ennþá erfiðara að meðtaka aldur hennar þegar maður skoðar myndir af henni. Ég þurfti að éta ofan í mig fordóma (sem ég var ekki einu sinni meðvituð um að ganga með) gagnvart sjötugum konum við hvert músaklikk.

Myndin hér að ofan sýndi Mamie þegar hún var um tvítugt. Þetta er Mamie eins og hún lítur út í dag: Ég get svoleiðis svarið það að hún er unglegri í dag en hún var um tvítugt.

Tjékkið síðuna! Hún er á við hressandi kinnhest! :)


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!