Matt Elliott: Drinking Songs
2005-06-09 14:13 _Mússíkin_

Jonni kom heim með disk um daginn sem ég er mjög hrifin af, Drinking Songs með Matt Elliott. Þetta er lágstemmd plata, í þeirri merkingu að hún er ekki með nein læti né hamagang. Það er hinsvegar fullt af gerast á henni, allskonar skemmtilegar melódíur sem vefjast utan um hverja aðra, hljóðfæri sem maður heyrir ekki í á hverjum degi (sög og eitthvað dót sem ég kann ekki að nefna) og svo er hún full af skemmtilegum minnum þannig að ég gat næstum því raulað með strax í fyrsta skiptið án þess að platan sé á nokkurnhátt ófrumleg.
Það hljómar kannski kjánalega en þegar við létum hana rúlla okkur inn í svefninn í fyrrinótt þá fékk ég svona tilfinningu eins og ég fékk oft þegar ég var unglingur en sjaldnar í seinnitíð, að þessi tónlist opnaði eitthvað inn í brjóstinu á mér og höfðinu, að ég vissi eitthvað núna sem ég hafði gleymt að ég vissi. Jamm, ég sagði að þetta hljómaði kjánalega.
Bæklingurinn sem fylgir disknum er prýddum algerlega gordjös myndum sem kippa manni aftur til ársins 1890, á bóhemabar einhversstaðar í rússlandi eða máske í úthverfum Parísar. Hægt er að skoða verk listamannsins, Uncle Vania, hér