Tuff Turf
2005-06-15 15:20 _Bíóið_

Myndin reyndist vera alveg ágæt, allavega ef maður hefur ánægju af eitís úlnlíngamyndum sem ég hef vissulega. Ég held það megi rekja það til þess að eitísúlníngamyndir eru eiginlega bara lengri útgáfur af eitísúlnlíngaþáttum sem ég horfði á þegar ég var nógu gömul til að hafa gaman af efni þeirra en ekki nógu gömul til að átta mig á því að sú mynd sem amerískir þættir drógu upp af úlnlíngalífi var ekki sérlega raunsæ. Ég varð fyrir töluverðum vonbrigðum þegar ég varð svo sjálf úlnlíngur.
Allavega. Fyrir konur sem fíla Spaderinn er Tuff Turf algert möst. Hann vaknar á naríunum, horfir munúðarfullum töffaraspaderaugum á kvenhetju myndarinnar, það eru langdregin kossaatriði... úff, ég verð óeinbeitt bara við það að rifja þessa mynd upp.