UNNUR 2.0
Safnar köttum

Fast Times at Ridgemont High

2005-06-15 15:30  _Bíóið_

Fast Times at Ridgemont High er afskaplega skemmtileg bíómynd. Þetta er auðvitað eitís únlíngamynd og af þeim sökum hafði ég þokkalega gaman að henni. Ég verð samt að viðurkenna að ég bjóst við meiru af henni þar sem hún er afskaplega umtöluð. Líklega má rekja það til þess að margir leikarar sem í dag eru afskaplega frægir léku í þessari mynd meðan þeir voru ennþá afskaplega ófrægir. Út af fyrir sig fannst mér gaman að sjá þessa leikara ennþá hvolpaspikaða og ómótaða. Myndir sjálf hinsvegar var bara svona lala fyrir utan hinn frábæra karakter Jeff Spicoli.

  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!