UNNUR 2.0
Safnar köttum

The Amityville Horror

2005-06-15 16:26  _Bíóið_

Ég horfði á upprunalegu útgáfu draugahússmyndarinnar The Amityville Horror um helgina. Þetta er týpísk draugasaga, saklaus fjölskylda kaupir spúkí hús, draugagangur ógnar fjölskyldunni og það kemur til uppgjörs. Það voru hinsvegar nokkur atriði í þessari mynd sem fóru ekki alveg eftir klisjunni og gerðu hana þannig athyglisverðari og framvinduna óútreiknanlegri.

Fyrir það fyrsta þá er það alveg á hreinu áður en fjölskyldan flytur inn í húsið að það voru framin þar ógeðsleg morð. Myndin snýst því ekki um það að fletta ofan af neinni mysteríu. Í öðru lagi þá er það á hreinu að fjölskyldan veit af ógeðslegu morðunum en ákveður að flytja samt inn. Húsið er svo ódýrt sko og ekki hægt að hafna svona góðum díl. Í þriðja lagi þá nær auðvitað húsið tökum á fjölskylduföðurnum sem byrjar að snappa en hann dettur aldrei algerlega inn í geðveikina eins og Jack Torrance heldur svissar inn og út úr henni og maður er aldrei alveg viss hvar hann er staddur. Í fjórða lagi þá kemur aldrei nein skýr útskýring á því afhverju draugagangurinn stafar, s.s. engar bjánalegar útskýringar. Í fjórða lagi þá deyr enginn í þessari mynd. Hún er í ofanálág ágætlega leikin, sæmilega tekin og tónlistin prýðileg.

Mér fannst það ekki skipta máli meðan ég horfði á myndina en hún er víst að hluta til byggð á sannri sögu. Það voru ógeðsleg morð framin í húsi í Amityville á Long Island, það flutti fjölskylda inn í húsið og flúði eftir mánuðu undan því sem þau sögðu vera draugagang. Málið varð auðvitað umdeilt og fjölskyldan dró hluta af frásögn sinni til baka. Það virðist samt ekki hafa skipt neinu máli upp á sölu bókarinnar sem var skrifuð um draugaganginn í húsinu né þann fjölda mynda sem gerðar hafa verið um aumingjans fjölskylduna í draugahúsinu.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!