UNNUR 2.0
Safnar köttum

Sirkus

2005-06-17 15:35  _Birt_víđar_

Textinn sem hér fer ađ neđan er hrifla sem ég skrifađi fyrir Kistuna um ljóđabókina Sirkus. Hann gefur ađ líta í sínu náttúrulega umhverfi hér.

* * *



Dans hinna dauđu - Hrifla um ljóđabókina Sirkus

Sirkus er ljóđabók eftir Óttar Martin. Hún er gefin út af Níhyl og eru eintökin númeruđ. Mitt eintak er númer 51 og mér finnst skemmtilegt ađ hugsa til ţess ađ höfundurinn hafi kannski sjálfur númerađ eintökin. Kápan er ţrílit, ljósblá, dökkblá og gul. Titilletriđ minnir mig á barnabćkur sem ég las fyrir langa löngu. Ţetta er víst önnur útgáfa kápunnar ţótt ţetta sé ađeins fyrsta útgáfa bókarinnar.

Innihald bókarinnar er stórskemmtilegt. Ţađ er langt síđan ég hef gleypt ljóđabók í mig af jafn miklum spenningi og ákafa. Efnisviđurinn er ađ vísu afskaplega ófyndinn en hann er settur fram í stórkarlalegum gálgahúmorrsstíl. Óhugnađurinn keyrir svo úr hófi fram ađ hann kallar fram taugaveiklunarhlátur og viđ lesturinn varđ mér hugsađ til bćđi John Waters og George Romero. Ljóđin gerast öll í Reykjavík á tímum plágunnar og er rađađ ţannig ađ ţau drífa frásögnina af ţessum síđustu dögum siđmenningarinnar áfram. Dómsdagur er í nánd, útlimir hrynja af fólki, fínar frúr gubba blóđi, feđur drepa dćtur sínar međ exi svo ţćr ţurfi ekki ađ ţjást, presturinn aflimar sjálfan sig svo hann láti ekki undan lostugum hugsunum. Sumir flýja, fela sig, reyna ađ sleppa undan plágunni. Ađrir leita á náđir gvuđa eđa geđveiki. Mun fleiri stíga ţó danse macabre á skemmtistöđum borgarinnar, reynir ađ drekka, dópa og ríđa eins mikiđ og mögulegt er áđur en plágan breytir ţeim í mávafćđu. Milli spjalda bókarinnar hringsnýst ţó ekki bara ógeđissirkusinn ţví ţađ eru margar áhugaverđar athugasemdir faldar undir öllu gorinu og Martin hefur greinilega skođanir á ţví samfélagi sem viđ lifum í.

Ađ lokum má nefna ađ bókin er skemmtilega myndskreytt og eru myndirnar í raun hluti af ljóđunum. Oft ljúka ţćr hálfsagđri setningu, stundum bćta ţćr viđ ţá mynd sem ljóđiđ dregur upp. Mér fannst ţađ sniđugt.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!