Fyrirlestur Monicu Braw og kertafleyting á Tjörninni
2005-08-10 00:49 _Viðburðurinn_

Friðarsamkoman í Tjarnarsal fyrr í kvöld var vel heppnuð. Fyrirlestur Monicu var skemmtilegur og kallaði fram margar fyrirspurnir úr sal. Ávarp Guðmundar og tónlistarflutningur Ólafs Torfasonar féll sömuleiðis vel í kramið og við áður auglýsta dagskrá bættist óvænt uppákoma þar sem Samtökum Friðarhreyfinga var fært málverk að gjöf. Fjöldi gesta fór fram úr öllum vonum og þrátt fyrir að viðbótarstólum hafi verið mokað í salinn rétt áður en dagskráin hófst voru þeir sem bættust við eftir að dagskráin hófst svo margir að stór hópur varð að standa. Rúmlega 200 manns sóttu fundinn.
Mér tókst ágætlega að vera fundarstjóri, að minnsta kosti náði stressið ekki yfirhöndinni. Ég hafði undirbúið mig ágætlega og skrifað niður fullt af punktum og vandlega raðað þeim eftir áætlaðri framvindu dagskrárinnar. Svo rétt áður en ég þurfti að leggja af stað fattaði ég auðvitað að ég gat ekki prentað þetta út. Ég náði að hripa eitthvað niður á blað og klóraði mig ágætlega fram úr þessu en var samt með góðan hnút í maganum framan af kvöldi. Núna hef ég þó allavega prófað að vera fundarstjóri!
Sjálf kertafleytingin var frábærlega vel heppnuð. Veðrið var fallegt og stillt og annar eins fjöldi hefur aldrei mætt síðan kertafleytingar í minningu Hiroshima-Nagasaki hófust fyrir tuttugu árum. Það er giskað á að um 4 þúsund manns hafi mætt sem gleður litla friðarsinnahjartað manns og glæðir von. Það að sjá kertin loga á Tjörninni var einstaklega falleg sjón þar sem við Jonni, Kiddí og Sigga röltum með fram Tjörninni heim á leið.