UNNUR 2.0
Safnar köttum

Dälek á Orðið Tónlist

2005-09-12 00:21  _Viðburðurinn_

Tónlistarhátíðinni Orðið Tónlist lauk í gær með tónleikum Dälek, Ghostdigital, Skakkamanage og Donnu Mess. Ég var að vinna til tíu og var boðin í afmæli sem ég kíkti við í eftir það svo að ég missti því miður af bæði Skakkamanage og Donnu Mess. Ghostdigital sá ég hinsvegar spila og var mjög ánægð með nýja efnið þeirra. Svo er alltaf svo ofsalega gaman að horfa á þá á sviði, fyrir þá sem ekki hafa séð þá þá spila hljóðfæraleikararnir (sem eru mismargir eftir giggum) á hljóðfærin sín og Bibbi mixar það sem þeir gera inn í tónlistina jafnóðum og býr til úr því marglaga tertu. Stundum sér maður þannig t.d. gítarleikarann standa með heyrnartólin (þar sem hann heyrir held ég bara í sjálfum sér) og spila og spila og gítarinn kemur svo inn í seinna og þá jafnvel alvarlega uppfokkaður eða margfaldaður. Mjög töff og gaman að horfa á!

Mér finnst líka strákurinn hans Einars vera að brillera með trompetinn. Hann er svo töff og svalur á sviði að spila að maður gleymir því næstum því að hann er bara lítill strákur, líklega bara tíu eða ellefu ára. Það verður athyglisvert að sjá hvað svona barn tekur sér fyrir hendur þegar hann verður eldri

Dälek létu ekki bíða eftir sér. Þeir voru eiginlega svo snöggir á svið að þar sem ég stóð frammi við barinn og sötraði vatn með læmsneið reiknaði ég ekki með öðru en að það væri verið að spila lag af diskinum þeirra til meðan verið væri að stilla upp. Svo fattaði ég að þetta hljómaði aðeins of læv og hljóp fram. Og á sviðinu stóðu Dälek og Octopus og bjuggu til þennan dásamlega hávaða.

Mér finnst erfitt að lýsa tónlist Dälek. Þetta er drungalegt og hávært hipphopp, stundum jafnvel soldið út í triphop og mjög melódískt. Þeir notast við sömpl frá hljómsveitum eins og My Bloody Valentine og Velvet Underground en líka mikið af drone-i. Rappstíll Dalëk sjálfs minnir mig stundum á Public Enemy. Heildin er samt miklu athyglisverðari en það að vera bara summan af því sem ég tel hér upp, það er eitthvað stórkostlegt sem gerist í þegar þessum rokgjörnu innihaldsefnum er blandað saman.

Tónleikar Dälek voru mjög kraftmiklir. Nær engin stopp og stöðugt verið að byggja upp spennu og láta hápunkta splundrast. Á köflum var eins og á manni skylli holskefla af hljóði og það var engin leið að standa kyrr og hlusta. Æðislegt!

Að svo miklu leyti sem ég var fær um að taka eftir einhverju öðru en tónlistinni þá naut ég þess mjög að sækja þessa tónleika í Iðnó. Salurinn í Iðnó er svo rosalega flottur og það er eitthvað svo dekadent að sjá svona performans á stað sem maður gæti auðveldlega ímyndað sér að væri piparkökuhús.

Eftir tónleikana rakst ég á Dälek og Octopus og þakkaði þeim fyrir. Þeir voru afskaplega glaðir og kátir og sögðu að það hefði komið þeim mikið á óvart hversu góðar viðtökur þeir hefðu verið að fá bæði hér og annarsstaðar á Norðurlöndum. Þeir höfðu til að mynda ekki komið með neitt merch því þeir höfðu ekki reiknað með því að fyrirhöfnin væri þess virði. Annað hafði hinsvegar komið í ljós.

Dälek gefa út hjá Ipecac sem er labell Mike Pattons og hafa túrað með jafnt með hiphop böndum og hljómsveitum á borð við ISIS, Melvins, Tomahawk og Dillinger Escape Plan. Mér finnst frekar svalt að fá þá hingað til Reykjavíkur. Afar svalt eiginlega bara. Reykjavík er hreinlega ekkert svo slæmur staður að búa á eftir allt saman...


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!