UNNUR 2.0
Safnar köttum

dEUs og Mammút á Nasa

2006-04-11 00:43  _Viđburđurinn_

dEUS er uppáhalds hljómsveitin mín. Ég fíla reyndar ekki allt sem þeir hafa gert. Tildæmis hef ég aldrei komist almennilega inn í The Ideal Crash. En það er allt í lagi. Þeir eru svo miklir guðir í mínum huga að ég er ábyggilega bara ekki komin á nógu hátt tilverustig til að fíla þá plötu og get því bara hlakkað spennt til.

Ég hef einu sinni séð dEUS áður, fyrir ellefu árum á Hróarskeldu. Þá var ég reyndar ekki viss um það að þeir væru uppáhaldshljómsveitin mín en mér fannst þeir kúl og var ógeðslega ánægð að sjá þá. Tveim árum seinna gáfu þeir út bestu plötu í heimi. Ever.

Tónleikar dEUS á NASA síðasta fimmtudagskvöld voru ótrúlega góðir. Ég er mjög ánægð með nýju plötuna þeirra og á tónleikunum kom bersýnilega í ljós að guðirnir kunna ennþá að spila og hafa ekkert tjúnað sig niður með árunum. Þeir voru meira að segja svo lúfir að taka extra flotta útgáfu af uppáhaldslaginu mínu New Jersey turnpike. Ég stóð aftarlega í salnum og brosti hringinn og hefðu lítil börn verið á svæðinu hefði ég án efa skotið þeim skelk í bringu, svo tryllingslega hamingjusöm var ég. Svo komu Bedda og Hannes spúsi hennar hlaupandi og vöktu mig úr hrifningslostinu og drógu mig með sér fremst þar sem við hoppuðum og sungum og dönsuðum skælbrosandi. Ég var um daginn að velta því fyrir mér hvort maður væri ekki bara kominn með sigg á tónleikasálina af þeirri tónleikalukku sem hefur einkennt líf mitt síðustu árin, það er að segja, hvort maður sé ekki orðinn svo vanur að bjóðast tækifæri til að sjá frábæra og einstaka tónlist læv að maður sé hættur að kunna að meta það. En nei, ég fékk tár í augun af gleði yfir því að dEUS skyldu í alvöru virkilega hafa komið (hugsið ykkur!) til Íslands! :)

Að lokum kunni ég afskaplega vel að meta það að Mammút skyldu hafa verið fengin til að hita upp. Ég kann nefnilega afskaplega vel að meta Mammút, þau hitta mig beint í hjartastað og framkalla flugelda og rafstraum í höfðinu á mér og það reyndar á svipaðan hátt og dEUS gerir. Ég hefði ekki getað óskað mér betri tvennu en kom fram á NASA síðasta fimmtudagskvöld sem var algerlega fullkomið.


  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!